
AUGLÝSING
UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunnamannahreppi
og Skeiða-og Gnúpverjahreppi
.
Samkvæmt 1.mgr 21.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar:
1 Kjarnholt í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Frístundabyggð.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Kjarnholts I. Í breytingunni fellst að á um 158 ha svæði milli Tungufljóts og Einholtslækjar breytist landnotkun í svæði fyrir frístundabyggð í stað landbúnaðarsvæðis. Gert er ráð fyrir að um 50 % svæðisins verði nýtt undir frístundabyggð en að öðru leyti verði svæðið nýtt fyrir opin svæði og til beitar.
2 Klausturhólar í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafningshreppi. Lögbýli.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 20020-2014 í landi Klausturhóla. Í tillögunni felst að um 6 ha svæði sem afmarkast af Bistupstungnabraut að sunnanverðu, Búrfellsvegi að vestanverðu, núverandi frístundabyggð að norðanverðu og landamerkjum við Hallkelshóla að austanverðu, breytist í landbúnaðarsvæði í stað svæðis fyrir frístundabyggð. Gert er ráð fyrir að í stað 6 frístundahúsalóða á þessu svæði verði gert ráð fyrir tveimur nýjum lögbýlum.Tillaga að breytingu á deiliskipulagi samsvarandi svæðis er auglýst samhliða.
3 Hrunamannhreppur, vatnsból og frístundabyggð.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2003-2015, láglendishluta. Breytingarnar eru eftirfarandi:
· Tvö ný vatnsból í Fagradal í landi Berghyls B8 og B9) og aðveituæð að Flúðum merkt inn á uppdrátt. Vatnsbólin og aðveituæðin eru þegar til staðar og í notkun.
· Svæði fyrir frístundabyggð í landi Dalbæjar III, merkt F15, stækkar um 11 ha. Tillaga að deiliskipulagi svæðisins er auglýst samhliða.
· Nýtt 29 ha svæði fyrir frístundabyggð, merkt F25, fyrir 10-15 frístundahús. Svæðið liggur upp að og meðram fyrirhuguðum Bræðratunguvegi að sunnanverðu.
· Nýtt 9 ha svæði fyrir blandaða landnotkun opin svæðis til sérstakra nota og svæði fyrir frístundabyggð þar sem gert er ráð fyrir 4-6 frístundalóðum og svæði fyrir skógrækt. Svæðið liggur upp að fyrirhuguðum Bræðratunguvegi að sunnanverðu, rétt vestan við flugvöllinn á Flúðum.
Samkvæmt 1.mgr. 25.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur:
4 Lækjarhvammur í Laugardal, Bláskógabyggð. Frístundahúsalóðir við Grafará.
Tillaga að deiliskipulagi tveggja frístundahúsalóða í landi Lækjarhvamms við Grafará, austan Laugarvatnsvegar (nr. 37). Svæðið er rúmlega 1 ha að stærð og skiptist það í tvær svipað stórar lóðir. Á annarri lóðinni er þegar risið frístundahús en á hinni er gert ráð fyrir allt að 50 m² frístundahúsi.
5 Útey í Laugardal, Bláskógabyggð. Frístundahúsalóðir, Vesturey 1 og 3.
Tillaga að deiliskipulagi tveggja frístundahúsalóða, Vesturey 1og 3, í landi Úteyjar, vestan Laugarvatnsvegar (nr. 37). Svæðið er 1 ha að stærð og skiptist í tvær jafnstórar lóðir og er þegar tæplega 40 m² hús á annarri. Heimilt verður að reisa allt að 120 m² frístundahús og allt að 25 m² aukahús á hvorri lóð.
6 Ásgarður í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafningshreppi. Giljatunga/Borgarbrún, 2. áfangi frístundabyggðar.
Tillaga að deiliskipulagi 2. áfanga frístundabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsnesi. Skipulagssvæðið er um 70 ha og afmarkast af Sogsvegi (nr. 36) að vestanverðu, landmörkum við Syðri-Brú og háspennulínu að norðanverðu og núverandi frístundabyggðarsvæði í landi Ásgarðs að sunnanverðu. Gert er ráð fyrir 62 lóðum á bilinu 0,5 til 1,5 ha þar sem heimilt verður að reisa allt að 150 m² frístundahús og allt að 25 m² aukahús. Til viðbótar er heimilt að hafa geymslukjallara undir hluta eða öllu frístundahúsinu, en nýtingarhlutfall lóðar má þó að hámarki vera 0.03.
7 Dalbær III í Hrunamannahreppi. Markarflöt, frístundabyggð.
Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Dalbæjar III. Svæðið sem kallast Markarflöt er rúmlega 20 ha að stærð og liggur vestan í Galtafelli. Gert er ráð fyrir 18 frístundahúsalóðum á bilinu 6.300 – 9.300 m2 þar sem heimilt verður að reisa allt að 120 m² frístundahús og allt að 30 m² aukahús. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi hluta svæðisins er auglýst samhliða.
Samkvæmt 1.mgr. 26.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar:
8 Búrfell 1 í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafningshreppi. Breyting á skilmálum frístundabyggðar, svæði 1.
Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðasvæðis í landi Búrfells 1, svæði 1. Í gildandi skilmálum er heimilt að reisa allt að 100 m² frístundahús og 10-15 m² geymslu á hverri lóð. Í breytingunni felst að heimilt verður að reisa allt að 180 m² frístundahús og allt að 25 m² aukahús. Nýtingarhluftall lóðar má þó að hámarki vera 0.03.
9 Búrfell 1 í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafningshreppi. Breyting á skilmálum frístundabyggðar, svæði 2.
Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðasvæðis í landi Búrfells 1, svæði 2. Í gildandi skilmálum er heimilt að reisa allt að 100 m² frístundahús og 10 m² geymslu á hverri lóð. Í breytingunni felst að heimilt verður að reisa allt að 180 m² frístundahús og allt að 25 m² aukahús. Nýtingarhluftall lóðar má þó að hámarki vera 0.03.
10 Klausturhólar í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafningshreppi. Tvö lögbýli í stað frístundahúsalóða.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Klausturhóla í Grímsnesi. Gert er ráð fyrir að í stað 6 núverandi frístundahúsalóða við Klausturgötu C verði stofnuð tvö ný lögbýli. Lóðir nr. 18c og 20 c verða sameinaðar í lögbýlið Bjarg (1,92 ha) og lóðir nr. 6 c, 8c 14, c og 16 c verða sameinaðar í lögbýlið Klett (3,8 ha). Í heild verður heimilt að reisa allt að 6 íbúðarhús á lögbýlunum tveimur. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi samsvarandi svæðis er auglýst samhliða.
11 Mýrarkot í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafningshreppi. Breyting á skilmálum frístundabyggðar.
Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Mýrarkots í Grímsnesi. Í gildandi skipulagi er heimilt að reisa 100 m² frístundahús en með breyttu skipulagi gert ráð fyrir að leyfilegt nýtingarhlutfall lóða verði að hámarki 0.03.
12 Kringla 2 í Grímsnesi, Grímsnes- og Grafningshreppis. Breyting á skilmálum frístundabyggðar.
Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Kringlu 2 í Grímsnesi. Svæðið sem um ræðir nær til 14 lóða vestan við Sólheimaveg (nr. 354) sem allar eru um og yfir 10 ha að stærð. Í breytingunni felst að á hverri lóð verður heimilt að reisa allt að 300 m² frístundahús og allt að 40 m² aukahús.
13 Nesjar í Grafningi, Grímsnes- og Grafningshreppis. Ný lóð við Réttarháls 7.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Nesja í Grafningi. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýrri 0,5 ha frístundahúsalóð við Réttarháls 7. Heimilt verður að reisa allt að 185 m² frístundahús á þessari lóð og skal mænishæð ekki vera hærri en 6 m. Skilmálar gildandi deiliskipulags fyrir aðrar lóðir á svæðinu breytast ekki.
14 Efra-Sel í Hrunamannahreppi. Breyting á skilmálum frístundabyggðarinnar Svanabyggð.
Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Efra-Sels í Hrunamannahreppi, Svanabyggð. Samkvæmt gildandi skilmálum eru heimilt að reisa allt að 90 m² frístundahús á þremur lóðum en eingöngu er heimilt að reisa 60 m² frístundahús á öðrum lóðum innan svæðisins. Í breytingunni er gert ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt að 90 m² frístundahús á öllum lóðum innan hverfisins.
Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags og hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 1. mars til 29. mars 2007. Einnig er hægt að nálgast tillögurnar á slóðinni http://www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar auk þess sem hægt er að óska eftir því við skipulagsfulltrúa að fá tillögurnar sendar með tölvupósti.
Athugasemdum við skipulagstillögurnar skulu berast til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 12. apríl 2007 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni.
Pétur
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu
