Blak kvenna
Æfingar eru klukkan 17:00 – 18:30 mánudaga og fimmtudaga.
Yfirlit 2010
Haustið 2007 hófust blakæfingar kvenna í Iþróttamiðstöðinni Borg á vegum Hvatar og voru æfingar einu sinni í viku í 90 mínútur í senn.
Fyrstu þrjú árin hélst sama fyrirkomulag en í haust jókst blakdeildinni ásmegin og fjöldi kvenna sem stunduðu blak var orðinn nokkuð stöðugur, 13 konur eru skráðar til leiks og fjöldi á hverri æfinga fer sjaldnast niður fyrir 8 í hvert sinn sem telst gott í blakheimum.
Í haust var ákveðið að hafa tvær æfingar í viku, á mánudögum og fimmtudögum frá 17:00 – 18:30. Þá voru einnig fengnir til liðs við okkur tveir reyndir blakarar, þeir Baldur Rúnarsson og Sigurður Örn Gunnarsson. Baldur hefur blakþjálfararéttindi en þeir skipta æfingum á milli sín.
Með þessum aukna þunga hefur blakið færst upp á næsta stig og markið er sett á að taka þátt í mótum og hefur verið ákveðið að taka þátt í Ölgungamótinu í ár, en það verður haldið í Vestmannaeyjum 5. – 7. maí. Jafnvel er fyrirhugað að taka þátt í Kjörísmótinu en ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um það. Á milli æfinga stjórna Ingveldur og Alice Petersen æfingum og nýta þá þær æfingar sem þjálfarnir hafa kennt okkur, en auk þess erum við í ágætur sambandi við þjálfarana ef eitthvað er, sem þarf að spyrja um eða læra á milli æfinga.
Liðið hefur fengið búninga, bæði keppnisgalla og utanyfirgalla, ljómandi vel heppnað en Henson var með okkur í því að útfæra hugmyndina að útliti þeirra.
Í vetur höfum við farið á eina æfingu hjá Laugdælum, farið og horft á Hsk mótið í blakið, auk þess sem til okkar hefur komið Hamar b bæði til æfinga og við tókum nokkrar hrinur. Kvennablak Garps hefur sömleiðis komið og keppt við okkur og Laugdælir komu einnig í heimsókn til okkar. Allt er þetta liður í því að efla okkur í spili og efla liðsandann. Ekki síður er gaman að því að hitta aðra blakara til þess að læra af þeim og miðla reynslunni.
Deildin heldur úti Fésbókarsíðu, Blak á Borg og bloggsíðu, www.blakarar.blogspot.com , dagleg umsýsla er í höndum undirritaðrar en peningamálin sér Anna Margrét Sigurðardóttir um.
Starfið hjá okkur í blakinu er því líflegt og góður andi í hópnum. Aðstaðan á Borg er ágæt og vel er gert við okkur varðandi aðstöðu.
Með blakkveðju Ingveldur Eiríksdóttir
