Eitt af verkefnum Hvatar er að skipa í nefnd sem sér um árleg Þorrablót að Borg í Grímsnesi.
Í ár voru það þau Helga Guðmundsdóttir og Aron Guðmundsson, Kristín og Hörður í Haga og Særún Stefánsdóttir Sólheimum og hennar maður.
Gamanmál flutt á Þorrablótinu 2011
Framan af árinu var ekkert að frétta, sjoppan opnaði ekki fyrr en í apríl.
Sólheimar hættu við að hætta við að hætta við að hætta við……..
Helvítis fokking fokk.
Ríkissáttasemjari
Kaupi notaða bíla, helst sem ég hef átt áður svo ég viti hvað er að þeim.
Jónsi Svínavatni
Jörð til sölu, lítið notuð hempa fylgir.
Þjóðkirkjan.
Kistur til sölu, komið og mátið, 20 daga skilafrestur.
Gísli Þórisstöðum
Erum með hausverk.
Konur í Vaðnesættinni
Skilaboð til Steina í Vatnsnesi: tjá bing ting dong song,
Óli Svínavatni
Tapað fundið:
Tapast hefur starfsmaður sást síðast á rauðum bíl merktum hreppnum, finnandi láti sveitastjórann vita.
Af Fésbókinni:
Er víst í vinnunni.
Dóri hrepps.
Afrétturinn er hreinsmalaður
Fjallskilanefnd
Pulsa með öllu, kók og prins, umfelgun og jafnvægisstilling, bland í poka fyrir afganginn.
Diddi í Sjoppunni
Hestaleigan lokuð vegna flensu, barinn opinn.
Kerhestar
Fréttir úr Grafningi…………….ef einhver frétti eitthvað, látið Hörð vita.
Á flottan reiðgalla og hestakerru, fer aldrei á bak.
Hannes á Litla-Hálsi
Brjálað að gera.
Kjörstjórn
Lesið nýju bókina mína ,, Á toppnum í 40 ár “
Höddi í Haga
Smá vandræði með reikning þorrablótsins.
Inga á Björk notaði bara sinn eigin reikning í fyrra, sjáið hvar hún er núna.
Tek að mér að sanda Biskupstungnabrautina á sumrinn.
Óli Svín
Ný uppskrift að reyktum lax, alreyking, reynið viðskiptin.
Árni Arnarbæli
Tek að mér að rífast og brjálast í smalamennskum.
Kolli Eyvík
Fórum að skoða brúðarkjóla, æðilegt í Boston.
Leifa og Helga Klausturhólum
Nýja hesthúsið í Kerlingu er bara fyrir mína hesta.
Sveitarstjóri
Er á Akureyri.
Kalli
Er bara heima
Keli
Er í Póllandi
Baldur
Nú ræð ég aftur !
Gunni Ártanga
Nú mætum við öll á; markað málþing kvikmyndasýningu listsýningu skrautsýningu vélasýningu myndasýningu fegurðarsýningu hrútasýningu
Hollvinir Grímsnes
Ég á dýrasta hrútinn í sveitinni, liggaligga lá.
Gunni Har.
Tek að mér ökukennslu, veit allt um útafakstur
Höddi í Haga
Óska eftir einkabílstjóra, þarf að hanga á veginum.
Stína í Haga
Auglýsing frá fjallskilanefnd. Farið verður á fjall þegar spáir næst roki rigningu, þoku og illviðri.
Tæfood alla fimmtudaga í sumar
Óli Svín
Óska eftir draumaprinsinum, ljóshærðum, myndarlegum, vöðvastæltum, duglegum heimavið og skemmtilegum eða batteríum í þann gamla.
Rut í sundlauginni.
Óska eftir draumaprinsinum handa Rut
Bragi í sundlauginni
Tapað fundið.
Þeir sem hafa séð Hildi á Stóru-Borg síðasta árið látið Þröst vita.
Er að smala
Auður á Hömrum
Er ekki að smala
Siggi á Hömrum
Er ekki heldur að smala
Gústi Stærri-Bæ
Vegna ofáts varð ég ekkert vitlaus í réttunum
Sæli Stóra-Hálsi
Vegna ofdrykkju varð ég sjónvarpsefni
Höddi í Haga
Tek að mér að skipa í nefndir
Ingvar Hæðarenda
Langar svo í austurleitina
Óli Fjalar
Týndist ekki í haust
litli Bjarni Þóroddstöðum
Tökum að okkur að smala annara manna afrétti, jafn fullir þar og á okkar eigin.
Miðengismenn
Lýst er eftir Hildi á Stóru-Borg, hún sást síðast á bak við búðarborðið í versluninni Borg fyrir þar síðustu áramót.
Finnandi á láti Þröst vita, hann er orðinn svangur.
Framboðslistinn
Við erum að djamma í kvöld
á Borg í Grímsnesi.
Á staðnum verður heljarinnar framboðslisti.
Á honum eru þeir sem flestir kannast við
og fullt af öðru fólki sem er hætt að stíga á svið.
Þar er Höddi kenndur við Haga
strýkur ótt sinn mjúka maga.
Inga á Björk er þarna líka
frek hún er og vill því flíka.
Gunnar Þorgeirs vill öllu ráða
við skulum vona að hann fari að fáða…
Sverrir Miðengis, nema hvað
viti menn hann datt í það.
Auður á Hömrum fer að gala
en ekki núna er að smala.
Ef þið heyrið barnaorg
þá er það bara Bjössi á Borg
Þar er líka Dóri gæi
syngur mikið og heldur lagi.
Má líka nefna Eika feik
sem ríður út á gamla Bleik.
Og frá Skála kemur Beta
gefur sveinka gott að éta.
Helga Helga í heiðursæti
færi á Alþing ef hún gæti.
Ég vona að enginn fari að fara
það þýðir ekkert að reyna að spara.
Þetta er framboðslistinn
Þetta er framboðslistinn
Þetta er framboðslistinn
Þetta er framboðslistinn
En hann Ingvar er á hinum
ásamt nokkrum góðum vinum.
Guðmundur Ármann kæri besti
sér ei á honum nokkra lesti.
Siggi svín hann hætti við
var eitthvað feiminn að stíga á svið.
Vigdís fína, þæga og góða
kom í staðinn, allt í gróða.
Að heiðnum sið hann Óli mætir
hans þýska ungfrú vel hans gætir.
Gústi á Stærri sáir í kekki
þreskir kornið en smalar ekki.
Bjarni Þorkels hamrar steininn
vill vatnið fanga er ófeiminn.
Hólmar á Borg hann verður þar
segir sögur lengst inni á bar.
Ásdís á Hálsi prjónar sokka
strýkur blítt sina ljósu lokka.
Böddi Páls af gömlum vana
er með nikku og spilar á hana.
Nú skulum við dansa og spjalla saman
í Grímsnesinu er bara gaman.
Á milli lista ljúft við mösum
kætumst saman og lyftum glösum
snýtum tóbaki úr okkar nösum.
Kristrún Hafliðadóttir frá Haga orti sem og
fyrripartana sem hér fara á eftir.
Lóa litla á Brú var í fyrsta sæti í botnasamkeppninni.
Mikið úti myrkrið er
Mikilvægt er ljósið.
Kvótinn bráðum klárast hér
Þá kemst ég ekki í fjósið.
Þreyttur kominn þorri er
Þokkalega kaldur
í Póllandi er pía ber
Passaðu þig Baldur
Í öðru sæti var Pulli Pallason með þessa botna:
Þreyttur kominn þorri er
Þokkalega kaldur
Kuldaboli kátur hér
Klípur nú í Baldur
Mikið úti myrkrið er
Mikilvægt er ljósið.
Í andstreyminu yljar mér
Alltaf blessað hrósið
Þorrablótsnefndina 2012 skipa:
Guðrún og Kolli Eyvík
Hannes og Gréta Litla-Hálsi
Elísabet og Pétur Úlfljósskála
Baldur og Þorkell Borg
Fráfarandi nefnd þakkar öllum kærlega fyrir gott blót !
