Lóðir til úthlutunar











Lóðir til úthlutunar

Í Grímsnes-og Grafningshreppi eru nokkrar lóðir lausar til úthlutunar á Borg. Um er að ræða einbýlis og parhúsalóðir. Ekki er um eignarlóðir að ræða en lóðirnar eru leigðar til 50 ára með forleigurétti. Fjarlægð frá Reykjavík er um 70 km., bundið slitlag alla leið.
Á Borg er leikskóli og nýr grunnskóli. Grunnskólinn Ljósaborg er fyrir börn í 1.-7. bekk þar sem lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og náttúrufræðikennslu.   Unglingar í 8. – 10. bekk eru keyrðir í grunnskóla Bláskógabyggðar, Reykholti, í um 20 km. fjarlægð. Leikskólinn Kátaborg er vel búinn einnar deildar leikskóli með rými fyrir um 30 börn. Á staðnum er glæsileg íþróttaaðstaða, með sundlaug, íþróttasal, líkasmræktaraðstöðu og sparkvelli.  Unnið er að frágangi við skólalóðina en þar verður körfuboltavöllur og glæsilegt leiksvæði.  Verslun er rekin á svæðinu og undirbúningur golfvallar við Minniborgir er hafinn.

Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 486-4400 mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9.00-14.00
Þeir sem hafa áhuga á að sækja um lóðir eru beðnir um að gera það skriflega:
Grímsnes-og Grafningshreppur
Borg
801 Selfossi
Sveitarstjóri



 
Deiliskipulag