Lyklakerfi

 


Lyklakerfi að hliðum inn í frístundahúsahverfi í Grímsnes-og Grafningshreppi


 


 


Nú eru um 45 hlið með lása frá lyklakerfi Grímsnes-og Grafningshreppi,lyklakerfið


er í eigu og þjónustu sveitarfélagsins.Sveitarstjórnin í samráði við neðangreinda aðila samþykktu að koma á lyklakerfi innan sveitarfélagsins varðandi aðgang að einstökum frístundahúsasvæðum, svo hægt væri að þjónusta þessi hverfi, s.s. lögreglunar í Árnessýslu, sem auk löggæslu annast einnig sjúkraflutninga í sýslunni,Brunavarnir Árnessýslu,Rarik og byggingarfulltrúa. Það er byggt þannig upp að ofantaldir aðilar hafi


hver um sig einn lykil (masterlykil), sem gengur að öllum hliðum, en hvert svæði/frístundahúsaeigandi hefur sinn eigin lykil,þ.e. lykil að hliði á sínu svæði er veiti ekki aðgang að öðrum svæðum. Sumarhúsa/lóðareigendur geta nálgast lykla á skrifstofu sveitarfélagsins Stjórnsýsluhúsinu Borg á skrifstofutíma mánudaga til fimmtudaga eða hringt og beðið um að láta senda lyklana í póstkröfu.


Síminn á skrifstofu er 486-4400.