Jafnréttisáætlun

 

Jafnréttisáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps

 

1.      Inngangur

Jafnréttisáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000. Jafnréttisáætlunin tekur til stjórnkerfis og starfsmanna sveitarfélagsins annars vegar og hins vegar til starfsemi og þjónustu sem stofnanir sveitarfélagsins veita íbúum. Auk þess eru í áætluninni tilmæli til einstaklinga og yfirvalda, stofnana og fyrirtækja sem ekki heyra undir stjórn sveitarfélagsins.

2.      Markmið

Markmið jafnréttisáætlunar er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla í Grímsnes- og Grafningshreppi og jöfnum möguleika kynjanna til að nýta sér það lagalega jafnrétti sem er til staðar. Þetta á við um menntun, atvinnulíf og félagslíf. Það er stefna Grímsnes- og Grafningshrepps að kynin njóti sömu tækifæra, fái sömu laun fyrir sömu vinnu og hafi sömu réttindi og sömu möguleika til áhrifa í samfélaginu.

3.      Ákvæði vegna starfsmanna sveitarfélagsins

·                 Nefndir og ráð: Við skipan í nefndir ráð og stjórnir á vegum sveitarfélagsins skal leitast við að hlutföll kynja séu sem jöfnust.

·                 Auglýsingar og ráðningar starfsmanna: Jafnréttisnefnd beinir þeim tilmælum til stjórnenda sveitarfélagsins að auglýsa lausar stöður til umsóknar. Auglýsing skal vera aðgengileg öllum. Á þeim vinnustöðum þar sem annað kynjanna er ráðandi skal koma fram hvatning til þess kyns sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein að sækja um laus störf.

·                 Starfsmannakjör: Við ákvörðun launa og annarra starfskjara, úthlutun verkefna, tilfærslur í störfum og uppsagnir skal þess gætt að mismuna ekki eftir kynferði sbr. 14. gr. laga nr. 96/2000. Því skal leitast við að meta jafnt mismunandi starfssvið, reynslu og menntun karla og kvenna. Unnið skal að því að störf s.s. umönnunar-, uppeldis- og heimilisstörf verði í samningum metin til jafns við önnur störf við starfsaldursákvarðanir hjá öllum starfsstéttum. Gæta skal þess að konur og karlar njóti að öllu leyti sambærilegra kjara og starfsaðstæðna með vísan í lög um jafna stöðu og rétt kvenna og karla nr. 96/2000 sbr. 23. gr.

·                 Jafnréttisáætlanir: Því er beint til yfirvalda grunn- og leikskóla að vinna að því að jafna stöðu kynjanna og veita börnum og unglingum hvatningu til að nýta hæfileika sína til fulls, bera virðingu hvert fyrir öðru og efla jákvæð samskipti kynjanna.

·                 Kannanir og rannsóknir: Félagsmálanefnd skal leitast við að halda uppi rannsóknum á stöðu kynjanna í sveitarfélaginu. Í þessu skyni skal aflað tölfræðilegra upplýsinga um stöðu karla og kvenna í sveitarfélaginu.

4.      Jafnréttisáætlanir deilda og stofnana

Í upphafi hvers kjörtímabils skulu stofnanir og fyrirtæki, nefndir og ráð sveitarfélagsins gera starfsáætlun í jafnréttismálum. Þar komi fram hvernig deildir/stofnanir hyggist vinna á grundvelli jafnréttisáætlunarinnar og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar í þeim tilgangi.

5.      Íþrótta- og æskulýðsmál

Sveitarstjórn og æskulýðsnefnd skal veita stúlkum og drengjum sömu tækifæri til íþróttaiðkana og íþróttafélögin hvött til hins sama. Kynin sitji jöfn að fjárveitingum á vegum sveitarfélagsins til íþróttaiðkunar. Kanna þarf brottfall unglinga eftir kynjum úr hefðbundnum íþróttagreinum og leita leiða til að mæta þörfum þeirra fyrir útrás og hreyfingu á annan hátt ef sýnt þykir að áhugasvið breytist eftir ákveðinn aldur. Þess skal gætt að stúlkur og drengir hafi sömu möguleika til sumarstarfa á vegum sveitarfélagsins.

 

6.      Viðurkenning

Grímsnes- og Grafningshreppur veiti einu sinni á hverju kjörtímabili viðurkenningu til þeirrar stofnunar eða fyrirtækis í sveitarfélaginu sem best hefur unnið að framkvæmd jafnréttisáætlunarinnar og/eða sýnt jafnréttismálum sérstakan alhug í verki.

 

7.      Fræðsla og ráðgjöf

Fræðsla um jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna skal vera virkur þáttur í starfi sveitarfélagsins. Fylgjast skal með endurmenntun í sveitarfélaginu og skulu stjórnendur beita sér fyrir því að slíkir möguleikar sú fyrir hendi sem geti aukið tækifæri kvenna og karla til atvinnu og menntunar.

8.      Kynning og endurskoðun.

Jafnréttisáætlun þessi skal kynnt íbúum sveitarfélagsins, starfsmönnum/stofnunum og fyrirtækjum á vegum þess. Áætlunina skal endurskoða að fjórum árum liðnum.

Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps þann 21. janúar 2010.