Reglur um fasteignaskatt


Reglur


Um lækkun, niðurfellingu eða styrki vegna fasteignaskatts í Grímsnes-og Grafningshreppi


1. gr.


Almennt


Samkvæmt 4. gr. laga nr. 4/1995 með síðari breytingum og 7. gr. reglugerðar nr. 1160/2005 er sveitarstjórnum veitt heimild til að lækka, fella niður eða veita styrki til greiðslu fasteignaskatta.


Sveitarstjórnum er skylt að setja reglur um beitingu þessa ákvæðis.


2. gr.


Starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni


Forsvarsmenn menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstarfa geta sótt um styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum félaganna. Forsenda þess að styrkur verði veittur er að starfsemi viðkomandi félags sé ekki rekin í ágóðaskyni. Skriflegum umsóknum þar sem gerð er grein fyrir starfsemi félagsins skal skilað á skrifstofu sveitarfélagsins.


Sveitarstjórn tekur ákvörðun um styrkveitingu á grundvelli ofangreindra forsendna.


3. gr.


Tekjulitir elli-og örorkulífeyrisþegar


Tekjulitlir elli- og örorkulífeyrisþegar sem búsettir eru í eigin íbúðarhúsnæði og eiga lögheimili í sveitarfélaginu geta fengið lækkun eða niðurfellingu á fasteignaskatti. Eingöngu er um niðurfellingu af íbúðarhúsnæði að ræða.


Skriflegum umsóknum ásamt staðfestu skattframtali skal skila til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 1. ágúst ár hvert.


Tekjuviðmiðun til elli- og örorkulífeyrisþega vegna lækkunar fasteignaskatts eru gefin út í ársbyrjun hvers árs.


Sveitarstjóri tekur ákvörðun um lækkun eða niðurfellingu á grundvelli tekjuviðmiðunar.


4. gr.


Bújarðir og útihús


Ekki er veitt heimild til lækkunar eða niðurfellingar á fasteignaskatti af bújörðum eða af útihúsum.


5. gr.


Friðuð hús


Eigendur friðaðra húsa geta sótt um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts af friðuðum húsum ef staðið hefur verið að endurbótum eða endurbyggingu þeirra.


Umsóknum skalt skilað inn til skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en 1. maí ár hvert. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um endurbyggingu eða endurbætur húsa.


Sveitarstjórn metur umsóknir og ákveður lækkun eða niðurfellingu í hvert sinn. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að fram hafi farið umtalsverðar endurbætur.


Reglur þessar voru samþykktar á fundi sveitarstjórnar Grímsnes-og Grafningshrepps þann 22. mars 2006 og taka þegar gildi.


Margrét Sigurðardóttir


Sveitarstjóri Grímsnes-og Grafningshrepps.