Reglur Grímsnes og Grafningshrepps um heimagreiðslur til foreldra/forráðamanna barna á aldrinum 12 – 18 mánaða.
1. Grímsnes og Grafningshreppur greiðir styrk til foreldra/forráðamanna barna frá 12 mánaða aldrei til 18 mánaða sem eiga lögheimili og aðsetur í sveitarfélaginu og kjósa eða geta ekki nýtt sér þjónustu leikskólans Kátuborgar.
2. Sækja þarf um styrkinn á skrifstofu hreppsins á þar til gerðum eyðublöðum. Ekki er tekið við umsóknum í gegnum tölvupóst..
3. Umsókn gildir frá þeim degi sem sótt er um og ekki er um afturvirkar greiðslur að ræða.
4. Styrkfjárhæð nemur kr. 20.000 á mánuði og er greidd eftir á.
5. Styrkurinn greiðist ekki fyrir það tímabil sem leikskólinn er lokaður í sumarfríum.
6. Styrkurinn fellur niður þegar barn hefur dvöl á leikskóla.
