SAMÞYKKT
um gatnagerðargjald í þéttbýli í Grímsnes- og Grafningshreppi
1.gr.
Almenn heimild
Af öllum lóðum og nýbyggingum, hvort sem er á eignarlóðum eða leigulóðum í þéttbýlinu á Borg og Ásborgum í Grímsnes- og Grafningshreppi skal greiða gatnagerðargjald til sveitarsjóðs samkvæmt gjaldskrá þessari. Um gatnagerðargjald fer að öðru leyti eftir lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006.
Einnig skal greiða vegna sömu framkvæmda stofngjald vatnsveitu skv. lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, stofngjald fráveitu skv. lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitu nr. 9/2009 og byggingarleyfisgjald skv. Skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997, Gjöld vegna þessa fara eftir viðkomandi gjaldskrám.
2.gr.
Ráðstöfun gatnagerðargjalds
Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í þéttbýli á Borg og Ásborgum, svo og til viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja. Skal nota það til greiðslu kostnaðar við undirbyggingu götu með tilheyrandi lögnum, þ.m.t. vegna götulýsingar, lagningu bundins slitlags og gangstétta, gerð umferðareyja, gangstíga og opinna svæða.
Tengi-og heimæðagjöld eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin gatnagerðargjöldum.
3.gr.
Gjaldstofn gatnagerðargjalds
Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði.
Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð. Gjaldstofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:
a. Við úthlutun eða sölu lóðar, eða byggingarréttar á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
b. Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, t.d ef land er í einkaeign, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu byggingarleyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til.
4. gr.
Útreikningur gatnagerðargjalds
Af hverjum fermetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar pr. fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis, eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987. Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir:
|
Húsgerð |
Hlutfall |
Einingarverð/m2 m.v.hámarksnýt- ingarhlutfall kr.* |
Lágmarks- gjald kr. ** |
Hámarks- Gjald kr.** |
|
Einbýlishús með bílgeymslu |
8,5% |
13.433 |
2.500.000 |
4.000.000 |
|
Parhús með/án bílgeymslu |
7,5% |
11.852 |
2.000.000 |
3.000.000 á íbúð |
|
Raðhús með/án bílgeymslu |
7,0% |
11.063 |
1.800.000 |
3.000.000 á íbúð |
|
Fjölbýlishús með/án bílgeymslu |
4,0% |
6.321 |
1.500.000 |
3.000.000á íbúð |
|
Verslunar-, þjónustu- og annað húsnæði |
3,5% |
5.531 |
2.500.000 |
6.000.000 |
|
Iðnaðarhúsnæði |
3,0% |
4.741 |
2.000.000 |
6.000.000 |
|
Hesthús |
3,0% |
4.741 |
1.000.000 |
2.500.000 |
|
Gróðurhús og fl. tengt landbúnaði |
1,0% |
1.580 |
3.000.000 |
6.000.000 |
*Verð breytist með byggingavísitölu, viðmið 506,6 stig í feb 2010.
**Verð breytist með byggingavísitölu, viðmið 506,6 stig í jan 2010, Lágmark skal þó aldrei vera hærra en skv. 4. gr. laga nr. 153/2006.
Fjárhæð gatnagerðargjalds breytist 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhússins (158.038 kr./fm, byggingarvísitala 506,6 stig f. febrúar 2010).
5.gr
Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds
Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:
a) Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar, sem aðeins er gengið í innan
frá.
b) Óeinangruð smáhýsi, minni en 10 fermetrar, fyrir stærri hús er greitt sama gatnagerðargjald og fyrir hesthús.
Sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður gatnagerðargjöld við sérstakar aðstæður, sbr. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld, nr. 153/2006.
6.gr.
Greiðsluskilmálar
Heimilt er að haga greiðslu gatnagerðargjalds sem hér segir: Innan eins
mánaðar frá undirskrift lóðarleigusamnings, sölu eignarlóðar eða lóðarveitingar 5skal greiða 20% af álögðu gatnagerðargjaldi, 40% innan 12 mánaða og 40% þegar lokið er lagningu bundins slitlags á viðkomandi götu.
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Af gjaldföllnum gatnagerðargjöldum skulu greiðast dráttarvextir, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga.
7.gr.
Afturköllun lóðarúthlutunar og heimild til afturköllunar byggingarleyfis,
ef gatnagerðargjald er ekki greitt.
Nú greiðir lóðarhafi ekki gatnagerðargjald á tilskyldum tíma og er hreppsnefnd þá heimilt að afturkalla byggingarleyfið og/eða lóðarúthlutun og skal kveðið svo á í úthlutunar- eða byggingarskilmálum.
Hafi teikningar af fyrirhuguðu húsi ekki borist byggingarnefnd til samþykktar innan 6 mánaða frá úthlutun lóðar, fellur lóðarúthlutunin úr gildi og endurgreiðast þá gatnagerðargjöld samkvæmt 6.gr. a-lið.
Byggingarfrestur er 12 mánuðir, þ.e.a.s. að lóð fellur aftur til sveitarsjóðs hafi framkvæmdir ekki verið hafnar innan þess tíma frá veitingu byggingarleyfis, nema leyfið hafi verið háð öðrum skilmálum um byggingarfrest.
8.gr.
Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.
Lögveðsréttur.
Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.
Gatnagerðargjald er á samt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggt með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveð og aðfararveði.
9.gr.
Endurgreiðsla gatnagerðargjalds
Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:
a) Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð.
b) Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.
Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 90 daga ef lóð er afturkölluð skv. a-lið, sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tenglsum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið, en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 90 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.
Við framkvæmd ákvæða þessarar greinar skal stuðs við 9.gr. laga um gatnagerðargjöld nr.153/2006.
10.gr.
Áfangaskipting framkvæmda
Í þeim tilvikum að lóðarhafi eða lóðareigandi ætla að byggja í áföngum, getur hreppsnefnd heimilað áfangaskiptingu gatnagerðargjalds og skal þá gatnagerðargjald hverju sinni vera skv. gjaldskrá sem í gldi er þegar byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið.
Umsækjandi skal taka það sérstaklega fram í umsókn um úthlutun lóðar að hann ætli að reisa fyrirhugað mannvirki í áföngum.
Verði áfangaskipting heimiluð falla áætluð gjöld í gjalddaga í samræmi við samþykkta áfangaskiptingu eða samþykki hreppsnefndar.
11.gr.
Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjöld
Um samninga um gatnagerðargjöld af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Grímsnes- og Grafningshrepp fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjöld, sem sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hefur undirgengist, fer eftir gjaldskrá um gatnagerðargjöld í Grímsnes- og Grafningshreppi frá 21. janúar 2004.
12.gr.
Gildistaka
Samþykkt þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þann 4. mars 2010, skv. heimild í lögum nr. 153/2006 um gatnagerðargjald.
Samþykktin öðlast gildi við birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um gatnagerðargjöld í þéttbýli í Grímsnes- og Grafningshreppi nr. 165/2004 um sama efni.
Þannig samþykkt á fundi sveitarstjórnar Grímnes- og Grafningshrepps þann 4. mars 2010.
