Samþykkt
um meðhöndlun úrgangs í Grímsnes- og Grafningshreppi.
1. gr.
Gildissvið og markmið
Samþykktin gildir um meðhöndlun úrgangs, þ.m.t. hirðu, söfnun og eyðingu úrgangs, í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sérhverjum húsráðanda í sveitarfélaginu, hvort sem um er að ræða húsráðanda íbúðar-, frístundar- eða atvinnuhúsnæðis, er skylt að nota þau ílát og þær aðferðir sem sveitarstjórn ákveður við þá meðhöndlun.
Markmið samþykktarinnar er:
a. að lágmarka það úrgangsmagn sem fer til förgunar með því að auka endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs,
b. að lágmarka kostnað samfélagsins við meðhöndlun úrgangs,
c. að kostnaður vegna úrgangs greiðist af þeim sem úrganginum veldur.
Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2004-2016 og Svæðisáætlun sveitarfélagsins um meðhöndlun úrgangs eru lagðar til grundvallar samþykkt þessari.
2. gr.
Skilgreiningar
Húsráðandi: Eigandi eða umráðandi viðkomandi fasteignar.
Ílát: Móttökuílát undir úrgang. Ílát til heimilisnota eru í stærðunum 240 l, 660 l eða 1100 l. Önnur ílát eru opnir eða lokaðir gámar í stærðum frá 2m3 upp í 30m3.
Grunneining: Samsetning tveggja íláta, blátunnu og grátunnu.
Blátunnan: Ílát, með bláu loki, undir endurvinnanlegan heimilisúrgang, annan en garðaúrgang og timbur. Sveitarfélagið auglýsir sérstaklega hvaða úrgang má setja í blátunnuna.
Grátunnan: Ílát, með gráu loki, undir annan heimilisúrgang en þann sem flokkast í blátunnuna, annan en garðaúrgang, timbur og spilliefni.
Heimilisúrgangur: Úrgangur frá heimilum, t.d, matarleifar, pappír, pappi, plast, garðaúrgangur, gler, timbur, málmar og sams konar leifar frá rekstraraðilum o.þ.h.
Rekstrarúrgangur: Úrgangur frá framleiðslu, þjónustu eða verslun, t.d. matarleifar, pappír, pappi, plast, gler, timbur, málmar, leifar frá framleiðslu o.þ.h.
Annar úrgangur: Annar úrgangur en sá sem flokkast sem heimilisúrgangur eða rekstrarúrgangur.
Þjónustuverktaki: Einstaklingur eða lögaðili sem sveitarstjórn hefur falið framkvæmd á tilteknum þáttum meðhöndlunar úrgangs.
Þjónustuaðili: Einstaklingur eða lögaðili, annar en þjónustuverktaki, sem hefur starfsleyfi til söfnunar og meðhöndlun úrgangs.
Söfnunartæki: Ökutæki sem notað er til söfnunar úrgangs úr ílátum.
Söfnunarleið: Vegur sem söfnunartæki ekur til þess að safna úrgangi frá íbúðarhúsum.
Aðkomustaður: Svæði sem söfnunartæki á auðvelt með að komast að til að athafna sig við söfnun úrgangs úr ílátum viðkomandi íbúðarhúsnæðis. Sé aðgengi eða heimreið að íbúðarhúsi ekki aksturshæf færist aðkomustaður söfnunartækis í samræmi við það.
Söfnunarstöð (gámastöð): Staður og aðstaða þar sem tekið er við úrgangi frá almenningi og/eða smærri fyrirtækjum. Þaðan fer hann til endurnotkunar og endurnýtingar eða er fluttur til móttökustöðvar .
3. gr.
Fyrirkomulag sorphirðu
Meðhöndlun úrgangs fer fram undir yfirstjórn sveitarstjórnar og er háð eftirliti heilbrigðisnefndar eða Umhverfisstofnunar eftir því sem við á í samræmi við 3. og 4. mgr.4. gr. laga nr. 5/2003 um meðhöndlun úrgangs. Söfnun úrgangs frá íbúðarhúsnæði fer fram í samræmi við útgefið sorphirðudagatal, en söfnun frá frístundahúsnæði og atvinnuhúsnæði fer fram að höfðu samráði við viðkomandi aðila.
Sveitarstjórn er heimilt að fela öðrum framkvæmd með tilteknum þáttum meðhöndlunar úrgangs. Viðkomandi skal hafa starfsleyfi heilbrigðisnefndar og Umhverfisstofnunar eftir því sem við á.
4. gr.
Íbúðarhúsnæði
Öll íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu skulu búin grunneiningu íláta. Stærð grunneininga er 240l blátunna og 240l grátunna. Í þessi ílát má aðeins setja heimilisúrgang, annan en garðaúrgang, timbur og spilliefni.. Sé fyrirséð að ílátin yfirfyllist getur húsráðandi óskað eftir stærri eða fleiri ílátum. Einnig getur hann farið með umfram magn heimilisúrgangs á söfnunarstöð sveitarfélagsins.Staðsetning íláta má að hámarki vera 20 m frá aðkomustað söfnunartækis við íbúðarhúsnæði. Húsráðandi skal gæta þess að ílát séu hrein, vel við haldið og að ekki sé hætta á að þau fjúki. Festingar íláta má ekki hamla losun þeirra. Gott aðgengi skal vera að ílátunum og moka skal snjó frá þeim ef þörf krefur vegna söfnunar.
Annan úrgang frá íbúðarhúsnæði skal skila á söfnunarstöð sveitarfélagsins eða semja við þjónustuverktaka um ílát og þjónustu fyrir slíkan úrgang.
5. gr.
Frístundahúsnæði
Húsráðanda frístundahúss er ekki skylt að hafa grunneiningu íláta en getur óskað eftir því. Samkomulag um slíka grunneiningu er á milli húsráðanda frístundahúsnæðisins og þjónustuverktaka. Stærð grunneininga er 240l blátunna og 240l grátunna. Húsráðendum frístundahúsa er heimilt að sameinast um ílát. Í þessi ílát má aðeins setja heimilisúrgang, annan en garðaúrgang, timbur og spilliefni. Sé fyrirséð að ílátin yfirfyllist getur húsráðandi óskað eftir stærri eða fleiri ílátum. Einnig getur hann farið með umfram magn heimilisúrgangs á söfnunarstöð sveitarfélagsins. Húsráðandi frístundahúss sem ekki hefur grunneiningu íláta, skal skila heimilisúrgangi á söfnunarstöð sveitarfélagsins.
Staðsetning íláta má að hámarki vera 200 m frá söfnunarleið söfnunartækis. Aðgengi að ílátum skal henta söfnunartækjum og skal húsráðandi gæta þess að ílát séu hrein, vel við haldið og að ekki sé hætta á að þau fjúki. Festingar íláta má ekki hamla losun þeirra. Gott aðgengi skal vera að ílátunum og moka skal snjó frá þeim ef þörf krefur vegna söfnunar.
Annan úrgang frá frístundahúsnæði skal skila á söfnunarstöð sveitarfélagsins eða semja við þjónustuverktaka um ílát og þjónustu fyrir slíkan úrgang.
6. gr.
Atvinnustarfsemi
Húsráðanda atvinnuhúss, eða rekstraraðila lögbýla, er ekki skylt að hafa grunneiningu íláta en getur óskað eftir því. Samkomulag um slíka grunneiningu er á milli húsráðanda atvinnuhúsnæðis og þjónustuverktaka/þjónustuaðila. Stærð grunneininga er 240 l blátunna og 240 l grátunna. Í þessi ílát má aðeins setja heimilisúrgang, annan en garðaúrgang, timbur og spilliefni. Sé fyrirséð að ílátin yfirfyllist getur húsráðandi óskað eftir stærri eða fleiri ílátum. Einnig getur hann farið með umframmagn heimilisúrgangs á móttökusvæði sveitarfélagsins. Húsráðandi atvinnuhúsnæðis sem ekki hefur grunneiningu íláta, skal skila heimilisúrgangi á móttökustöð sveitarfélagsins.
Staðsetning íláta má að hámarki vera 200 m frá söfnunarleið söfnunartækis. Aðgengi að ílátum skal henta söfnunartækjum og skal húsráðandi gæta þess að ílát séu hrein, vel við haldið og að ekki sé hætta á að þau fjúki. Festingar íláta má ekki hamla hirðingu þeirra. Gott aðgengi skal vera að ílátunum og moka skal snjó frá þeim ef þörf krefur vegna söfnunar.
Rekstrarúrgang og annan úrgang frá atvinnustarfsemi skal skila á söfnunarstöð sveitarfélagsins, móttökustöð eða semja við þjónustuverktaka/þjónustuaðila um ílát og þjónustu fyrir slíkan úrgang.
7. gr.
Þjónustuaðilar
Sveitarstjórn gerir sérstaka samþykkt um samskipti þjónustuaðila og sveitarfélagsins sem fjallar um verklag og tilhögun valkvæðrar þjónustu.
8. gr.
Skyldur íbúa, húsráðenda, rekstraraðila og landeigenda
Íbúum, húsráðendum, rekstaraðilum og landeigendum í sveitarfélaginu ber að fara eftir þeim reglum sem sveitarfélagið setur um meðhöndlun úrgang.
Setja skal allan úrgang í viðeigandi ílát að öðrum kosti er þjónustuverktaka heimilt að skilja hann eftir.
Úrgang sem samþykktin nær til má einungis meðhöndla í samræmi við gildandi lög, reglugerðir og kröfur sveitarfélagsins.
Flokkaður úrgangur skal þannig meðhöndlaður að hann blandist ekki öðrum úrgangsflokkum.
Flokkaðan úrgang skal geyma og meðhöndla þannig að gæði hans við væntanlega endurnýtingu skerðist sem minnst.
Úrgang sem getur fokið skal geyma þannig að hann fjúki ekki.
Meðhöndlun úrgangs má ekki valda lyktaróþægindum, draga til sín meindýr eða valda hreinlætisvandamáli.
Óheimilt er að skilja eftir eða geyma rusl, sorp eða annan úrgang á víðavangi, götum, gangstígum eða opnum svæðum í sveitarfélaginu. Sama á við númerslausa bíla, vélar og önnur tæki.
9. gr.
Móttaka úrgangs á söfnunarstöð.
Söfnunarstöð er fyrir íbúa, húsráðanda, rekstraraðila eða landeiganda í sveitarfélaginu til að losa sig við úrgang.
Á söfnunarstöð er gerð krafa um flokkun úrgangs og ber notendum skylda að fara eftir þeirri flokkun. Úrgangur skal flokkaður við móttöku samkvæmt flokkunarreglum sveitarfélagsins. Spilliefni, svo sem úrgangsolía og úrgangsvökvar, skulu aðskilin frá öðrum úrgangi og uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 806/1999 um spilliefni.
Í gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs eru nánar greindir þeir úrgangsflokkar sem tekið er á móti og það gjald sem tekið er fyrir móttöku og eyðingu hvers um sig. Slík gjöld skulu innheimt við móttöku annarra úrgangsflokka en almenns heimilisúrgangs sem safnað af sveitarfélaginu eða þjónustuverktaka. Heimilt er að undanþiggja gjaldskyldu minni háttar magns tiltekins heimilisúrgangs sem komið er með til söfnunarstöðvar.
Söfnunarstöð er mönnuð og hefur ákveðinn auglýstan afgreiðslutíma.
10. gr.
Gjaldtaka
Sveitarstjórn er heimilt innheimta gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í samræmi við 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Þá er sveitarstjórn heimilt að innheimta sorphirðugjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs og tengdrar starfsemi í samræmi við 2. mgr. 11. gr. laganna. Gjaldið skal sett og innheimt samkvæmt gjaldskrá sem sett er samkvæmt ákvæðum 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar.
Gjöld í hverjum flokki skulu vera sem næst meðal raunkostnaði við þá þjónustu sem veitt er, en þó aldrei hærri en sem nemur þeim kostnaði sem til fellur við meðhöndlun úrgangs, veitta þjónustu og framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum og tengda starfsemi.
Gjöld skulu lögð á hverja fasteign, lögbýli, frístundahús, stofnun eða fyrirtæki sem nýtur framangreindrar þjónustu.
Sveitarfélagið skal láta birta gjaldskrána í B-deild Stjórnartíðinda og skal í gjaldskránni vísað til þessarar samþykktar.
11. gr.
Ýmis ákvæði
Hafi húsráðandi fram að færa kvörtun vegna meðhöndlunar úrgangs skal hann koma slíkri kvörtun á framfæri við skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps eða til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
12. gr.
Með brot á samþykkt þessari skal farið samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 33. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
13. r.
Samþykkt þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3. ml. 5. mgr. 4. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, sbr. ákvæði 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, og staðfestist hér með til þess að öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt nr. 417/2000 um sorphirðu í Grímsnes- og Grafningshreppi..
Umhverfisráðuneytinu 29. janúar 2009
