Húsvörður við Félagsheimilið Borg, Kerhólsskóla og stjórnsýsluhús Grímsnes- og Grafningshrepps
Laust er til umsóknar starf húsvarðar við Félagsheimilið Borg, Kerhólsskóla og stjórnsýsluhús Grímsnes- og Grafningshrepps. Um er að ræða fullt starf með sveigjanlegum vinnutíma.
Starf húsvarðar felst meðal annars í:
√ Útleigu og þrifum á Félagsheimili.
√ Lokun húsanna seinni part dags.
√ Umsjón/eftirliti með öryggiskerfum húsanna.
√ Móttöku pantanna og skráningu á útleigu Félagsheimilisins.
√ Gæta að aðgengi húsanna með tilliti til snjóa og hálku.
√ Minniháttar viðhaldi á mannvirkjum, umhverfi, áhöldum, tækjum og tæknibúnaði sem tilheyrir Félagsheimilinu.
Viðkomandi þarf að vera stundvís, reglusamur og hafa góða færni í almennum samskiptum. Gerð er krafa um að húsvörður hafi aðsetur á Borg og getur húsnæði fylgt starfinu.
Umsækjandi þarf að sýna fram á hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi, FOSS.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til sveitarstjóra á netfangið gogg@gogg.is
eða á skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en 24. október n.k.
Öllum umsóknum verður svarað. Jafnframt er óskað eftir að umsókn fylgi framtíðarsýn umsækjenda á notkun og útleigu hússins.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Harðardóttir, sveitarstjóri í síma 480-5500 eða á netfangið gogg@gogg.is