Fara í efni

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL

Meðfylgjandi skipulagsauglýsing  birtist 8. júlí 2020, í Lögbirtingablaðinu, Fréttablaðinu og Dagskránni. Auk þess á heimasíðu UTU www.utu.is.

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL

Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Skeiða-og Gnúpverjahreppur

 Aðalskipulagsmál

Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru eftirfarandi mál auglýst til kynningar:

Skáldabúðir – Virkjanakostur vindorku, Hrútmúlavirkjun – Skipulags- og matslýsing

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti þann 10. júní 2020 að kynna skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst skilgreiningar á mögulegum vindorku virkjanakosti í landi Skáldabúða undir heitinu Hrútmúlavirkjun. Framlögð skipulagslýsing tekur til breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029, deiliskipulagi fyrir svæðið auk matslýsingu til samráðs um umfang og nákvæmni upplýsinga í umhverfisskýrslu.

Loftstaðir-Vestri – Ferðaþjónusta, tjöld og þjónustuhús – Skipulags- og matslýsing

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum 9. júní 2020 að kynna skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029  í landi Loftsstaða- Vestri. Í breytingunni felst að notkun á 2 ha svæði vestan við íbúðarhús að Loftstöðum- Vestri L165512 er breytt í verslunar-og þjónustusvæði.

Skálabrekka-Eystri – Frístundasvæði – Skipulags- og matslýsing

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 29. júní 2020 að kynna skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 í landi Skálabrekku-Eystri. Í breytingunni felst að skilgreindir frístundasvæðis flákar innan jarðarinnar Skálabrekku-Eystri L224848 eru sameinaðir í eitt samfellt svæði. Stærð svæðisins helst óbreytt.

Deiliskipulagsmál

Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:

Laugarás – Lauftún garðyrkjustöð – Deiliskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti þann 14. maí 2020 að kynna og leita umsagna vegna breytinga á deiliskipulagi að Laugarási. Í breytingunni felst að skipulagi lóðar er breytt þar sem komið er fyrir þremur gróðurhúsum, pökkunaraðstöðu, véla- og áhaldageymslu/bílskúr og tveimur starfsmannahúsum. Fyrir á lóðinni eru tvö íbúðarhús. Skilmálar deiliskipulags svæðisins frá 29. des. 2011 halda sér óbreyttir að öðru leyti.

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum/breytingum:

Ás 3 III-2 land (Hestás) – Lögbýli og íbúðarhúsalóðir - Deiliskipulag

Sveitarstjórn Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. júní 2020 að auglýsa tillögu deiliskipulags vegna lands Ás 3 III-2 land L204647 sem skilgreint er sem landbúnaðar- og íbúðarsvæði innan aðalskipulags Ásahrepps 2010-2022. Innan skipulagssvæðisins er afmörkuð ný 2,21 ha íbúðarhúsalóð sem fengi staðfangið Reykás. Að auki er afmarkaður byggingarreitur á landinu sjálfu sem verður 12,68 ha eftir landskipti og fyrirhugað að verði gert að lögbýli og óskað er eftir að það fái staðfangið Hestás í stað núverandi staðfangs. Innan byggingarreitanna er gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 300 fm íbúðarhús á tveimur hæðum, allt að 600 fm úthús/skemmu á einni hæð með heimild fyrir 30% millilofti og allt að 100 fm gestahús á einni hæð.

Efri-Reykir – Hótelbygging og baðlón – Deiliskipulag

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 18. júní 2020 að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna hótels og baðlóns í landi Efri-Reykja. Innan deiliskipulags er gert ráð fyrir að byggð verði baðlón og hótel. Einnig er gert ráð fyrir að byggð verði starfsmannahús innan svæðisins. Málið hefur áður verið auglýst árið 2018 og er nú auglýst á nýjan leik þar sem meira en ár er liðið frá síðustu auglýsingu skipulagsins. Fyrir liggur niðurstaða Skipulagsstofnunnar er varðar ákvörðun um hugsanlega matsskyldu verkefnisins.   

Birkilundur 9-13 Friðheimar - Breyting á aðkomu og sameining byggingareita -   Deiliskipulagsbreyting 

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 29. júní 2020 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir Reykholt í Biskupstungum. Í breytingunni felst að gerður er  sameiginlegur byggingareitur fyrir lóðirnar Friðheima 1 og Skólaveg 11. Gerð er ný aðkoma að Skólavegi 11 frá Sólbraut, aðkoman er eingöngu ætluð fyrir starfsfólk, fyrir vörumóttöku og vörusendingar. Til að fá svigrúm fyrir nýja aðkomu að Skólavegi 11 eru gatnamót Sólbrautar og Skólavegar færð um 20 m til suðurs, inn á lóð Skólavegar 13. Lóðamörk Skólavegar 13 breytast til samræmis við færslu Sólbrautar og minnkar lóðin um 192 m2. Göngustígum er breytt í samræmi við breytingar á Sólbraut og nýjar byggingar.

Kolgrafarhóll – Apavatn  2 – Deiliskipulag

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 18. júní 2020 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir 5 frístundalóðir auk einnar lóðar sem er skilgreind sem landbúnaðarland í landi Apavatns 2, Efra-Apavatns, í Bláskógabyggð. Svæðið sem er um 13,9 ha að stærð er skilgreint í gildandi aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem F20 (frístundabyggð). Aðkoma að svæðinu er um Laugarvatnsveg (37) og Kolgrafarhólsvegi.

Ósbakki – Íbúðarhús, reiðskemma, hesthús, vélarskemma – Deiliskipulag

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 4. maí 2020 að auglýsa deiliskipulagstillögu í landi Ósbakka í Flóahreppi. Innan deiliskipulagsins eru afmarkaðir byggingarreitir fyrir íbúðarhús og hesthús/skemmu auk þess sem gert er grein fyrir aðkomu.

Hallandi 1A , Hallandi 1 L166234 – Deiliskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 9. júní að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Hallanda 1 og 1A. Í breytingunni felst að skilgreind er lóð utan um byggingarreit A. Lóðin sem þegar er stofnuð, Hallandi lóð L197704, er skráð 1.575 fm en verður 9.090 fm og fær heitið Hallandi 1A eftir breytingu. Byggingarreiturinn breytist óverulega, var 4.852 fm en verður 4.900 fm. Í núgildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja allt að 200 fm bílskúr/skemmu og allt að 30 fm baðhús en hámarksstærð íbúðarhússins var ekki skilgreind. Í breytingunni er gert ráð fyrir að hámarksbyggingarmagn innan byggingarreitsins verði 600 fm.

Kiðjaberg Lóð 27 og 28 - Færsla lóðar - Deiliskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. júní 2020 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Kiðjabergs. Í breytingunni felst að lega lóðar Kiðjabergs 27 Hlíð breytist með þeim hætti að hún er færð fast upp að lóð nr. 28. Stærð lóðar og byggingarreitir halda sér óbreyttir utan þessarar tilfærslu í samræmi við framlögð gögn. Ástæða breytinganna er lág lega lóðarinnar sem verður til þess að lóðin getur orðið útsett fyrir flóðum úr Hvítá.

Gilvegur 3 í landi Ormsstaða - Deiliskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. júní 2020 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi vegna Gilvegar 3 í landi Ormsstaða. Í breytingunni felst að heimildir fyrir notkun byggingarefna eru auknar, byggingarheimild sumarbústaðar er aukin úr 100 m2 í 200 m2. Mænishæð er aukin úr 5 m í 6 m. Heimildir fyrir þakhalla eru auknar úr 14-60° í 2-60° auk þess sem heimilað er að byggja tvö smærri hús á lóðinni sem ekki mega vera stærri en 40 m2. Heimildum fyrir byggingar innan byggingarreits er breytt í samræmi við það. Skilmálabreytingar taki til skipulagssvæðisins í heild og verði sérstaklega kynnt innan þess í samræmi við bókun skipulagsnefndar og sveitarstjórnar.

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni http://www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna:    https://asahreppur.is/, https://www.blaskogabyggd.is, https://www.gogg.is,   https://www.floahreppur.is/ og https://skeidgnup.is/.

Skipulagstillögur og breytingar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 8. júlí til og með 20. ágúst 2020. Athugasemdir og ábendingar skulu berast eigi síðar en 20. ágúst 2020.

Skipulagstillögur og breytingar eru í kynningu með athugasemdafresti frá 8. júlí til og með 29. júlí 2020. Athugasemdir og ábendingar skulu berast eigi síðar en 29. júlí 2020.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið vigfus@utu.is

 Vigfús Þór Hróbjartsson

Skipulagsfulltrúi UTU

  

Síðast uppfært 28. júlí 2020
Getum við bætt efni síðunnar?