Fara í efni

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð

Um er að ræða 100% starf
Starfið er tímabundið til 30. maí 2021 en möguleiki er á áframhaldandi starfi.

Menntunar og hæfniskröfur:
• Menntun og/eða reynsla af sambærilegu starfi æskileg.
• Sveiganleiki og færni í mannlegum samskiptum.
• Framtakssemi og jákvæðni.
• Áhugi á matreiðslu.
• Áhugi á að starfa fyrir og með börnum á ólíkum aldri.
• Hreint sakavottorð.

Kerhólsskóli er heildstæður leik- og grunnskóli með um 75 nemendur.
Mötuneytið þjónar nemendum skólans ásamt starfsmönnum skólans,
starfsmönnum sveitarfélagins og eldriborgurum í sveitarfélaginu. Mötuneytið
þjónustar því um 115 aðila daglega.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við
hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist
til sveitarstjóra á netfangið sveitarstjori@gogg.is eigi síðar en
miðvikudaginn14. apríl n.k. Öllum umsóknum verður svarað.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Harðardóttir, sveitarstjóri í síma
480-5500 eða í tölvupósti á netfangið sveitarstjori@gogg.is

Síðast uppfært 31. mars 2021
Getum við bætt efni síðunnar?