Fara í efni

Náms- og rannsóknarstyrkur

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2020. Úthlutað verður kr. 1.600.000 í styrki þetta árið. Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnuog/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands. Umsóknarfrestur er til 6. desember næstkomandi og skulu umsóknir vera sendar á netföngin eyjolfur@fraedslunet.is eða sigurdur@hfsu.is. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á www.fraedslunet.is og www.hfsu.is

Síðast uppfært 25. nóvember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?