Fara í efni

Slitgigarnámskeið hjá Færni sjúkraþjálfun Í Íþróttahúsinu á Borg

Mánudaginn 21. september hefst nýtt námskeið hjá slitgigtarskólanum Færni.

Námskeiðið byggir á sértækri þjálfun og fræðslu fyrir einstaklinga með einkenni frá mjaðmasvæði og hnjám.

Æft er á mánudögum og fimmtudögum klukkan 10.15 - 11.15.                      
Á mánudögum er æft undir handleiðslu sjúkraþjálfara en á fimmtudögum eftir uppsettri æfingu í íþróttahúsinu. Mælingar eru framkvæmdar í byrjun og lok námskeiðs til að meta árangur. Kennari er Þórfríður, löggildur sjúkraþjálfari.

Námskeiðið er í 8 vikur

Verð 15.000.-

Síðasta námskeið sýndi góðan árangur þátttakanda. Allir bættu styrk sinn og gönguhraða og voru með minni verki í hnjám eða mjöðmum. Einnig minnkuðu þátttakendur verkjalyfjaskammt.
Það sem þátttakendum fannst helsti kosturinn við námskeiðið var góð fræðsla og mikilvægi þess að leiðbeina sér í æfingum. Einnig að mæta í hóptíma þar sem allir eru að fást við svipaða verki gaf þeim aukinn hvata til þess að styrkja sig og mæta í tíma. 

 Skráning í síma 8475005. Einnig erum við á facebook undir nafninu þjálfun og slitgigt Færni

Síðast uppfært 1. september 2020
Getum við bætt efni síðunnar?