Fara í efni

Endurskoðun aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2020 - 2032

Endurskoðun aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2020 - 2032

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps boðar til fundar vegna endurskoðunar aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032.

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 20. október í Félagsheimilinu Borg.

Húsið opnar klukkan 19:30 og áætlað er að fundinum ljúki klukkan 21:30.

Fundardagskrá er eftirfarandi:

  • Kynning frá Gísla Gíslasyni skipulagsráðgjafa hjá EFLU um  aðalskipulagið
  • Umræður um tillögu að nýju aðalskipulagi

Að lokum gefst íbúum, fasteignaeigendum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að ræða við skipulagsráðgjafa og  vinnuhópinn, sem samanstendur af sveitarstjórn og skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins, um einstök atriði í endurskoðun aðalskipulagsins.

Fundurinn er opinn öllum þeim sem vilja kynna sér og ræða helstu viðfangsefni og áherslur sveitarfélagsins í endurskoðuðu aðalskipulagi.

F.h. Grímsnes- og Grafningshrepps
Ása Valdís Árnadóttir
Oddviti

 

Getum við bætt efni síðunnar?