Samgöngunefnd
Samgöngunefnd Grímsnes- og Grafningshrepps er skipuð af sveitarstjórn og heyrir beint undir hana.
Kjörtímabil nefndarinnar er hið sama og sveitarstjórnar og skal hún skipuð að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
Nefndin skal skipuð þremur aðalmönnum og þremur til vara.
Formaður er tilnefndur af sveitarstjórn en að öðru leyti skiptir nefndin með sér verkum.
Meginhlutverk samgöngunefndar er að móta samgöngustefnu og umferðaröryggisáætlun og eftir atvikum að endurskoða stefnuna og áætlunina.
Ásamt því að koma með tillögur um samgöngubætur í sveitarfélaginu.
Erindisbréf
Fundargerðir
Síðast uppfært 20. desember 2019
Getum við bætt efni síðunnar?