Fara í efni

Fólk með fötlun

Grímsnes- og Grafningshreppur ásamt Hrunamannahreppi, Bláskógabyggð, Flóahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa sameinast um að reka sameiginlega félagsþjónustu sem ber nafnið Velferðarþjónusta Árnesþings. 
Undir málefni fatlaðs fólks flokkast:

• Þjónusta við fullorðna með fötlun
• Atvinnu- og búsetumál fatlaðra
• Liðveisla
• Þjónusta við börn með fötlun/þroskafrávik og fjölskyldur þeirra
• Félagsleg liðveisla

Velferðarþjónusta Árnesþings stuðlar að því að veitt sé ráðgjöf til einstaklinga með fötlun og aðstandenda þeirra m.a. með greiningu, meðferð og stuðning. Einnig miðla þau upplýsingum m.a. um réttindi og möguleika fatlaðra til þjónustu og aðstoðar við lausn vandamála vegna fötlunar. Velferðarþjónusta Árnesþings hefur samskipti og samráð við aðrar þjónustustofnanir í tengslum við að finna viðeigandi lausn á málum einstaklinga með fötlun og aðstandenda þeirra.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Velferðarþjónustu Árnesþings.

Jafnframt er Grímsnes- og Grafningshreppur aðili að byggðarsamlaginu Bergrisanum bs. sem fer með skipulag og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, sem á lögheimili í aðildarsveitarfélögunum, í samræmi við lög og reglugerðir í málefnum fatlaðra.

Síðast uppfært 9. ágúst 2023
Getum við bætt efni síðunnar?