Fara í efni

Jafnlaunastefna

Grímsnes- og Grafningshreppur er að innleiða jafnlaunakerfi sem inniheldur jafnréttisáætlun og byggir jafnlaunastefna sveitarfélagsins á henni.
Jafnlaunakerfið og stefnur ná til allra starfsmanna sveitarfélagsins.
Grímsnes- og Grafningshreppur fylgir lögum nr. 10/2008 og öðrum lögum og kröfum sem sveitarfélagið undirgengst varðandi það að jöfn laun séu greidd fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óháð kyni.
Tilgangur jafnlaunakerfisins er að tryggja jafnrétti og jafna stöðu kynja hjá sveitarfélaginu. Markmiðið er að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundinn mismunur eigi sér stað. Með jafnréttisáætluninni eru stjórnendur og aðrir starfsmenn jafnframt minntir á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs og stöðu að öðru leyti og að nýta beri til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum allra óháð kyni.
Launajafnrétti Kynjunum skulu greidd jöfn laun og þau njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt eða sambærileg störf sem og hvers konar frekari þóknana. Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hver önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár í samræmi við gildandi kjarasamninga.
Markmið sveitarfélagsins er að enginn óútskýrður launamunur verði hjá sveitarfélaginu og frávik ekki meiri en 5%.
Jafnlaunastefnan er unnin í samræmi við þau lög og reglugerðir sem fjalla um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem og aðra mismunun. Jafnlaunakerfið skal rýnt árlega og taka stöðugum umbótum. Jafnlaunamarkmið skulu endurskoðuð út frá niðurstöðum launagreiningar. Stjórnendur skulu einnig skuldbinda sig til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frávikum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu. 

Síðast uppfært 14. ágúst 2020