Fara í efni

Velferð barna

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings veitir ýmis konar stuðningsþjónustu þeim fjölskyldum og einstaklingum í Grímsnes- og Grafningshreppi sem þurfa á stuðningi við uppeldi og aðbúnað barna að halda.
Félagsráðgjafar vinna að málefnum barna og ungmenna samkvæmt barnaverndarlögum og í umboði fagnefndar skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings.
Markmið barnaverndar er að tryggja börnum og ungmennum viðunandi uppeldisskilyrði með því að styrkja fjölskyldur og beita stuðningsúrræðum til verndar einstaka börnum þegar það á við. Höfuðáhersla er lögð á samvinnu við foreldra hvað varðar stuðningsúrræði, sem eru valin eftir því sem þurfa þykir hverju sinni.
Börn eiga rétt á vernd og umönnun. Foreldrum ber að sýna börnum sínum umhyggju og nærfærni og annast þau eins og best hentar hag og þörfum þeirra, búa þeim viðunandi uppeldisaðstæður og gæta velfarnaðar þeirra. Öllum ber okkur að sýna börnum virðingu og umhyggju.
Markmið barnaverndar er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð. Öllum foreldrum og þeim sem hafa samskipti við börn stendur til boða almenn ráðgjöf hjá félagsráðgjafa.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíða Skóla- og velferðaþjónustu Árnesþings.

Síðast uppfært 28. febrúar 2024
Getum við bætt efni síðunnar?