Fara í efni

Golfklúbbur Hraunborga

Golfklúbbur HraunborgaGolfklúbbur Hraunborga var stofnaður árið 2013 og er félagasamtök um golfvöllinn í Hraunborgum í Grímsnes- og Grafningshrepp.
Golfvöllurinn er skemmtilegur 9 holu, par 3 völlur sem hentar öllum að spila, en á vellinum hafa margir stigið sín fyrstu skref í golfíþróttinni.
Markmið Golfklúbbs Hraunborga er að stuðla að golfíþróttinni og gefa öllum aldurshópum tækifæri á því að spila þessa frábæru íþrótt fyrir sanngjarnt verð og í skemmtilegum félagsskap.
Golfvöllurinn er opin fyrir öllum, þ.e.a.s. 
bæði fyrir félagsmenn og aðra áhugasama golfara sem vilja spila staka hringi á vellinum.
Rástíma þarf ekki að panta heldur mætir golfarinn eingöngu á völlinn til að spila.
Heimasíða Golfklúbbs Hraunborga er www.gkh.is.

Síðast uppfært 28. maí 2021