Fara í efni

Viðbragðsáætlanir

Sveitarfélagið er ein af grunnstoðum samfélagsins og ber sem slíkt ábyrgð á margvíslegum þáttum sem snerta allt mannlíf á hverjum stað. Samstillt og skipulögð vinna við að vinna samfélagið út úr erfiðleikum í kjölfar áfalls mun án efa ráða miklu um það hversu fljótt allt líf íbúanna kemst aftur í eðlilegt horf og endurreisn samfélagsins er að fullu lokið. Grímsnes- og Grafningshreppur hvetur alla íbúa sveitarfélagsins til að kynna sér viðbragðsáætlanir sveitarfélagsins.

Áföll geta verið af ýmsum toga bæði fyrirvaralaus og eins áföll sem fyrirséð er að íbúar sveitarfélagsins munu þurfa að takast á við. Að sjálfsögðu verða viðbrögð við áföllum að taka mið af aðstæðum hverju sinni, en í raun er þó hægt að notast við sömu leiðbeiningarnar til þess að takast á við mismunandi áföll.

Síðast uppfært 2. apríl 2020