Varmadælustyrkir
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur samþykkt reglur um fjárstyrki til eigenda fasteigna vegna varmadælna. Markmiðið með styrkveitingunum er að styðja við íbúa á svæðum þar sem hitaveita er ekki tæknilega eða fjárhagslega hagkvæm og hvetja til aðgerða sem draga úr notkun raforku til upphitunar á íbúðarhúsnæði.
Hverjir geta sótt um? Styrkirnir eru ætlaðir þinglýstum eigendum fasteigna þar sem er skráð lögheimili og föst búseta. Skilyrði fyrir styrknum er að fasteignin sé á svæði þar sem dreifikerfi hitaveitu nær ekki til og að viðkomandi fasteign njóti niðurgreiðslu til húshitunar.
Styrkupphæð og skilmálar:
- Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps styrkir eigendur um allt að 50% af útlögðum kostnaði við kaup og uppsetningu.
- Styrkhæfur kostnaður nær einnig yfir breytingar eða lagningu á lögnum utan tæknirýmis.
- Hámarksstyrkur frá sveitarfélaginu er 500.000 krónur.
- Athugið að fjárhæð styrks frá Orkustofnun er dregin frá heildarkostnaði áður en styrkur sveitarfélagsins er reiknaður út.
Umsóknarferli og afgreiðsla Umsóknarfrestur er til 1. maí ár hvert. Umsækjendur skulu skila inn styrkumsókn þar sem framkvæmdinni er lýst ítarlega. Framkvæmda- og veitunefnd fer yfir umsóknir og leggur tillögu fyrir sveitarstjórn. Berist fleiri umsóknir en fjárheimildir ársins leyfa, verður dregið á milli umsókna. Þeir sem ekki hljóta styrk vegna fjölda umsókna eiga þess kost að sækja um aftur síðar.
Greiðsla styrkja Styrkurinn er greiddur út þegar framkvæmdum er að fullu lokið. Til að fá styrkinn greiddan þarf að leggja fram:
- Kvittanir fyrir útlögðum kostnaði.
- Staðfestingu á styrkveitingu frá Orkustofnun.
- Staðfestingu á að styrkur frá Orkustofnun hafi verið greiddur út.