Fara í efni

Ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnessýslu

Ásborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi hefur aðsetur í Aratungu og starfar fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp, Bláskógabyggð og Hrunamannahrepp.
Starf ferðamálafulltrúa er margþætt en í meginatriðum felst það í fjölþættri ráðgjöf, alhliða upplýsingamiðlun, frumkvöðlaaðstoð og þátttöku í fjölbreyttum verkefnum.

Hægt er að hafa samband við Ásborgu ef ykkur vantar upplýsingar um ferðamöguleika á svæðinu, þjónustu eða hvað eina sem ykkur vantar svör við.
Ásborg hefur áhuga og gaman að heyra ef þú/þið eruð með skemmtilega hugmynd að verkefni.
Email: asborg@ismennt.is
Farsími: 898 1957
Sími: 480 3009

Á www.sveitir.is má finna upplýsingar um fjölbreytta þjónustu á svæðinu.

Grímsnes- og Grafningshreppur er einnig aðili að Markaðsstofu Suðurlands sem annast markaðssetningu Suðurlands sem ferðaþjónustusvæðis og sinnir einnig ráðgjöf við fyrirtæki í ferðaþjónustu og ýmsum samstarfsverkefnum.
Á vefnum www.south.is má finna upplýsingar um ferðaþjónustu á Suðurlandi.

Síðast uppfært 5. nóvember 2022