Fara í efni

Fyrsta skóflustunga að viðbyggingu við íþróttamiðstöðina á Borg

Í dag 26. apríl var tekin fyrsta skóflustunga að viðbyggingu við íþróttamiðstöðina á Borg. Það er fyrirtækið Fossvélar ehf sem er framkvæmdaaðili í jarðvinnuhluta framkvæmdarinnar. Opnuð voru tilboð í bygginguna sjálfa fyrr í þessari viku og bárust alls fimm tilboð í þá framkvæmd, reiknar sveitarfélagið með að ganga að einu þeirra á fyrsta fundi sveitarstjórnar í maímánuði.

Sveitarstjórn er mjög spennt fyrir þessu verkefni og mikil ánægja er með að framkvæmdin sé hafin en áætluð verklok við bygginguna eru í ágúst 2025.

Í byggingunni er gert ráð fyrir skrifstofuhúsnæði á efri hæð og góðri líkamsræktaraðstöðu og aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara á neðri hæð. Viðbyggingin tengist við austurgafl íþróttamiðstöðvarinnar og verður á tveimur hæðum með heildarflatarmál um 670m². Líkamsrækt og sjúkraþjálfun ásamt stoðrýmum verða á 1. hæð en á 2. hæð verða skrifstofur og stoðrými.

Þetta er langþráð verkefni og bindur sveitarfélagið vonir við að þetta muni verða lyftistöng í þjónustu fyrir bæði íbúa og gesti sveitarfélagsins.

Síðast uppfært 26. apríl 2024
Getum við bætt efni síðunnar?