Fara í efni

Kerhólsskóli auglýsir eftirtaldar stöður skólaárið 2024-2025.

Í skólanum eru rúmlega sjötíu nemendur frá eins árs og upp í 10. bekk. Í Kerhólsskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu og útinám. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði „Uppeldi til ábyrgðar“. Leitað er eftir sjálfstæðu og drífandi fólki með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi.

Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar:

  • Umsjónarkennarar á yngsta- og miðstig ásamt öðrum verkefnum í teymiskennslu, 100% stöður.
  • List og verkgreinakennari (smíði, textil, o.fl.), 75% -100% stöðu.
  • Sérkennari / þroskaþjálfi í 100% stöðu.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Frumkvæði og hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.
  • Mjög góð hæfni í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
  • Þekking á Uppeldi til ábyrgðar
  • Þekking og reynsla af útinámi
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsókn um störfin skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Umsækjendur verða að hafa hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2024. Nánari upplýsingar veitir Jóna Björg Jónsdóttir, skólastjóri í síma 480-5520 / 863-0463 og jonabjorg@kerholsskoli.is Umsóknir sendist á netfangið jonabjorg@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 25. mars 2024
Getum við bætt efni síðunnar?