Fara í efni

Fjallskilanefnd

1. fundur 23. ágúst 2010 kl. 13:00 - 15:30 Stjórnsýsluhúsið Borg
Nefndarmenn
  • Kolbeinn Reynisson
  • Auður Gunnarsdóttir
  • Ólafur Ingi Kjartansson
  • Sigrún Jóna Jónsdóttir
  • Ingólfur Jónsson

Fjallskilanefnd Grímsnes- og Grafningshrepps kom saman til fundar. Fyrsta leit í Grímsnesi fer af stað föstudaginn 10. september og réttað í Klausturhólum 15. september. Fyrsta leit í Grafningi fer af stað 18. september og réttað verður í Selflatarétt 20. september. Heiðin verður smöluð í fyrstu leit og svo aftur í eftirleit sem farin verður í október. Sama álagning er í ár og í fyrra, bæði á jörð og kind. Dagsverk í Grímsnesi verður  7.000 og 10.000 í Grafningi. Fjárhagsáætlun hljóðar upp á 1.915.000 bæði tekjur og gjöld.

Viðræður hafa staðið yfir við fjallskilanefnd Bláskógabyggðar um að fjallskilanefnd Grímsnes- og Grafningshrepps taki við smölun Þingvallasveitarafréttar austan vatna. Fjallskilanefnd leggur til að leitin verði mönnuð 4 mönnum í 3 daga í fyrstu leit, samtals 12 dagsverk á 7.000 kr. og tveimur mönnum í 2 daga í eftirleit samtals 4 dagsverk á kr. 9.000. Alls 120.000 kr.

Getum við bætt efni síðunnar?