Fara í efni

Sveitarstjórn

421. fundur 22. nóvember 2017 kl. 09:00 - 12:30 Stjórnsýsluhúsið Borg
Sveitarstjórn
  • Gunnar Þorgeirsson
  • Ingibjörg Harðardóttir
  • Hörður Óli Guðmundsson
  • Sigrún Jóna Jónsdóttir
  • Guðmundur Ármann Pétursson
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Ingibjörg Harðardóttir

1.    Fundargerð sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps frá 8. nóvember 2017.  

Fundargerð sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps frá 8. nóvember 2017 liggur frammi á fundinum.

 
2.      Fundargerðir.

a)      Fundargerð 22. fundar æskulýðs- og menningarmálanefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 30. mars 2017.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

b)     Fundargerð 64. fundar fræðslunefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 15. nóvember 2017.

Mál nr. 1, 7a og 7b þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar.
Lögð fram 64. fundargerð fræðslunefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, dags. 15. nóvember 2017. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar;

Mál nr. 1: Kynning á fjárhagsáætlun.
Fræðslunefnd fór yfir drög að fjárhagsáætlun 2018 fyrir skólann. Lagður var fram óskalisti um fjárfestingu á skólalóð ofl. Sveitarstjórn vísar þessum lið til gerðar fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.

Mál nr. 7a: Önnur mál.
Fræðslunefnd óskar eftir að fundin verði betri lausn á aðkomu flutningabíla að mötuneyti skólans. Sveitarstjóra falið að ræða við flutningsaðila.

Mál nr. 7b: Önnur mál.
Óskað eftir að sveitarstjórn afhendi bækurnar „Fyrstu dagarnir“ og „Árin sem enginn man“ til nýbakaðra foreldra í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn hafnar erindinu. 

c)      Fundargerð 144. fundar Skipulagsnefndar Uppsveita, 9. nóvember 2017.

Mál nr. 1 og 9 þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar.
Lögð fram 144. fundargerð Skipulagsnefndar Uppsveita, dags. 9. nóvember 2017. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar;

Mál nr. 1: 1711021 - Áætlanagerð Skógræktar ríkisins og Landgræðslunnar.
Hreinn Óskarsson og Hrefna Jóhannesdóttir hjá Skógrækt ríkisins kynntu fyrirhugaða vinnu við gerð lands- og landshlutaáætlanir fyrir skógrækt og landgræðslu.

Mál nr. 9: 1710006F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 17-66.          
Lagðar fram til kynningar afgreiðslur byggingarfulltrúa frá 3. nóvember 2017.

d)     Fundargerð 47. fundar stjórnar Skipulags- og byggingarfulltrúa Uppsveita bs., 9. nóvember 2017.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

e)      Fundargerð ársfundar Bergrisans bs., 25. október 2017.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

f)       Fundargerð 11. fundar Héraðsnefndar Árnesinga bs., 10. og 11. október 2017.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

g)      Fundargerð 185. fundar fagráðs Tónlistarskóla Árnesinga, 30. október 2017.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 
3.        Undirskriftarlisti frá nemendum í 8. – 10. bekk Kerhólsskóla þar sem óskað er eftir skólahreystibraut og rallýkrossbraut.
Fyrir liggur undirskriftarlisti frá nemendum í 8. – 10. bekk Kerhólsskóla þar sem óskað er eftir skólahreystibraut og rallýkrossbraut. Sveitarstjórn skoðar fjármögnun skólahreystibrautar við gerð fjárhagsáætlunar en ekki er hægt að verða við beiðni um akstursbrautir.

 
4.        Tölvupóstur frá Bjarna Guðmundssyni f.h. stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið skipi fulltrúa sveitarfélagsins á félagsfund sorpstöðvarinnar þann 15. desember n.k.
Fyrir liggur tölvupóstur frá Bjarna Guðmundssyni f.h. Sorpstöðvar Suðurlands, dags. 17. nóvember 2017 þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið skipi fulltrúa sveitarfélagsins á félagsfund sorpstöðvarinnar þann 15. desember n.k. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Gunnar Þorgeirsson verði fulltrúi sveitarfélagsins og Ingibjörg Harðardóttir til vara.

 
5.        Tölvupóstur frá Bjarna Guðmundssyni framkvæmdarstjóra SASS f.h. atvinnumálanefndar SASS þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar á Orkunýtingarstefnu SASS 2017 – 2030.
Fyrir liggur tölvupóstur frá Bjarna Guðmundssyni framkvæmdarstjóra SASS, dags. 17. nóvember 2017 þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar á Orkunýtingarstefnu SASS 2017 – 2030. Sveitarstjórn gerir orkunýtingarstefnu SASS að sinni.

6.       
Beiðni um styrk frá Landgræðslu ríkisins vegna samstafsverkefnisins „Bændur græða landið“.
Fyrir liggur beiðni um styrk frá Landgræðslu ríkisins til verkefnisins „Bændur græða landið“. Óskað er eftir styrk að fjárhæð kr. 36.000. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk.

 
7.        Beiðni um styrk frá Aflinu vegna reksturs samtakanna.
Fyrir liggur beiðni  um styrk frá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi til reksturs samtakanna. Jafnframt er lögð fram ársskýrsla samtakanna fyrir árið 2016. Sveitarstjórn hafnar styrkbeiðninni.

 
8.        Beiðni um styrk frá Saman-hópnum vegna forvarnarstarfs hópsins.
Fyrir liggur beiðni um styrk frá Saman-hópnum, samstarfshópur frjálsra félagasamtaka, stofnanna og sveitarfélaga sem láta sig varða forvarnir og velferð barna. Einnig liggur fyrir framkvæmdaáætlun hópsins fyrir árið 2018. Sveitarstjórn hafnar styrkbeiðninni.

 
9.        Bréf frá Umhverfisstofnun þar sem vakin er athygli á breytingum á upplýsingagjöf sveitarstjórnar við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.
Fyrir liggur bréf frá Umhverfisstofnun, dagsett 6. nóvember 2017 þar sem vakin er athygli á breytingum á upplýsingagjöf sveitarstjórnar við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs. Bréfið lagt fram til kynningar.

 
10.    Bréf frá sviðsstjóra Þjóðskrár Íslands, Hirti Grétarssyni þar sem tilkynnt er um leiðrétt fasteignmat 2018.
Fyrir liggur bréf frá sviðsstjóra Þjóðskrár Íslands, Hirti Grétarssyni, dagsett 1. nóvember 2017 þar sem tilkynnt er um leiðrétt fasteignmat 2018. Bréfið lagt fram til kynningar.

 
11.    Álagning gjalda og gjaldskrárbreytingar fyrir árið 2018.
Fyrir liggja tillögur að gjaldskrám og álagningu gjalda vegna ársins 2018.

 
 Útsvarshlutfall árið 2018 verði óbreytt 12,44%.

Fasteignaskattur A, 0,475% af fasteignamati á íbúðarhúsnæði, bílageymslur, geymsluhúsnæði, lönd og útihús í landbúnaði og sumarhús, allt með tilheyrandi lóðum.

Fasteignaskattur B, 1,32% af fasteignamati sjúkrastofnana skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, skóla, heimavista, leikskóla, íþróttahúsa og bókasafna, að meðtöldum lóðum og lóðarréttindum.

Fasteignaskattur C, 1,65% af fasteignamati allra annarra fasteigna með tilheyrandi lóðum.

           
Afsláttur er af fasteignaskatti íbúðarhúsa til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri eða 75% öryrkjar og eiga lögheimili í viðkomandi fasteign. Afsláttur er hlutfallslegur og miðast við tekjur síðastliðins árs samkvæmt skattframtali. Til tekna teljast bæði launatekjur og fjármagnstekjur. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.

Tekjumörk vegna afsláttar ársins 2018 eru eftirfarandi:

Tekjur einstaklinga                           Tekjur hjóna                                      Niðurfelling

Allt að 2.566.000                               Allt að 3.844.000                                           100%

Milli 2.566.001 – 2.981.000              Milli 3.844.001 – 4.426.000                           75%

Milli 2.981.001 – 3.451.000              Milli 4.426.001 – 5.009.000                           50%

Milli 3.451.001 – 3.844.000              Milli 5.009.001 – 5.603.000                           25%

                       
Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda:

Fjárhæðir að 25.000 eru með einn gjalddaga 1. maí, 25.001-90.000 eru með 5 gjalddögum með fyrsta gjalddaga 1. mars og síðasta 1. júlí og 90.001 og yfir verði með 7 gjalddögum með fyrsta gjalddaga 1. mars og síðasta 1. september.

 
Seyra, seyrulosunargjald vegna kostnaðar við seyrulosun/fráveitukerfi verði kr. 10.098 á hvert íbúðarhús, sumarhús og fyrirtæki sem ber samkvæmt byggingar­skil­málum að hafa rotþró eða vera tengt viðurkenndu fráveitukerfi.

 
Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins og verður það 0,23% af fasteignamati húss.

 
Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna frá lóðarmörkum við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera kr. 211.750.

 
Sorp, álagning vegna sorphirðu og sorpeyðingar vegna heimilissorp er:

 
Sorphirðugjald:

            Ílátastærðir                 Grátunna                    Blátunna                     Græntunna

            240 L ílát                    17.364 kr.                     7.532 kr.                        7.532 kr.

360L                           25.920 kr.                   11.160 kr.                      11.160 kr.

660 L ílát                    50.104 kr.                   23.054 kr.                      23.054 kr.

1700L                       127.500 kr.                   52.700 kr.                      52.700 kr.

1.100 L ílát                 82.343 kr.                   37.265 kr.                      37.265 kr.

3.000 L ílát               216.000 kr.                   93.000 kr.                      93.000 kr.

8.000 L ílát               576.000 kr.                 248.000 kr.                   248.000 kr.

 

Sorpeyðingargjald:

Íbúðarhúsnæði                       21.000 kr.

Frístundahúsnæði                  17.713 kr.

Lögbýli                                   10.269 kr.

Fyrirtæki                                34.362 kr.

 

Gjaldfrjálst verður á gámastöð fyrir allt að 3 m3 vikulega.

Umframmagn er gjaldskylt á móttökustöð, miðast við m3 þess úrgangsmagns sem afsett er. Allur úrgangur er gjaldskyldur við afsetningu nema brotamálmar og úrgangur sem ber úrvinnslugjald Úrvinnslusjóðs.

Móttökugjald á einn m3         5.000 kr.

 
Vatnsveita, vatnsskattur eigna í fasteignaskattsflokki A,  lögbýli/einbýlishús, verði 0,25% af fasteignamati eigna sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins. Hámarksálagning verði kr. 50.000 á hverja eign/hús. 

Vatnsskattur eigna í fasteignaskattsflokki A í skipulagðri frístundabyggð verði 0,25% af fasteignamati eigna sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins. Hámarksálagning verði kr. 65.000 og lágmarksálagning verði kr. 25.000 á hús.

Vatnsskattur eigna í fasteignaskattsflokki C verði 0,25% af fasteignamati eigna sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins. Hámarksálagning verði kr. 170.000 á hverja eign/hús. 

 
Tengigjöld vatnsveitu (stofngjöld) fyrir frístundahús og íbúðarhús verða kr. 480.965.

Tengigjöld fyrir lögbýli að meðtöldu einu íbúðarhúsi verða kr. 714.385.

Á þeim lóðum sem ekki hefur verið byggt á en hafa tengst vatni er innheimt fast árgjald kr. 25.000.

Fyrir ný skipulagða frístundabyggð sem tengjast skal vatnsveitu sveitarfélagsins skal landeigandi greiða kr. 45.000 fyrir hverja lóð á skipulagi fyrir lagningu stofnlagnar.

 
Gjald fyrir útkall vegna tilkynningar notanda um bilun sem reynist vera í búnaði húseiganda verði kr. 15.000 án vsk á dagvinnutíma en sé leitað eftir þjónustu utan dagvinnutíma reiknast 55% álag.

 
Gjaldskráin miðast við að heimtaug í sumarhús sé 20mm.  Velji menn 25mm heimtaug tvöfaldast tengigjaldið og semja verður sérstaklega um sverari heimtaugar.

 
Hitaveita, 5. gr. A, B, C, D og E-liður gjaldskrá hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps breytist þannig:

A. Hemlagjald (varmagjald):
Sumarbústaðir, snjóbræðslukerfi og notkun samkvæmt sérsamningum skal greiða fyrir hemlagjald. Lámarksstilling er 3,0 l/mínútu.

Hemlagjald fyrir hvern mínútulíter á mánuði hækkar úr kr. 2.477 í kr. 2.576.

B. Eldri samningar
Þar sem vatnið er keypt skv. hemli beint úr stofnlögn hækkar gjald fyrir hvern mínútulíter úr kr. 2.209 á mánuðií kr. 2.297.

C. Rúmmetragjald skv. mæli:
Almennt íbúðar- og iðnaðarhúsnæði og gróðurhús skal greiða varmagjald. Varmagjald fyrir hvern rúmmetra vatns hækkar úr kr. 117,80 í kr. 122,50.

Sumarbústaður sem er með mæli og greiðir skv. rúmmetragjaldi skal þó aldrei greiða minna en sem nemur 3,0 l/mínútu eða sem nemur kr. 7.728 á mánuði, sbr. A-liður 5. gr.

Mælagjald á mánuði:

            C1 Stærð mælis/hemils DN 15    1.228 kr.

            C2 Stærð mælis/hemils DN 20    1.756 kr.

            C3 Stærð mælis/hemils DN 25    2.170 kr.

            C4 Stærð mælis/hemils DN 32    2.588 kr.

C5 Stærð mælis/hemils DN 40    3.006 kr.

C6 Stærð mælis/hemils DN 50    4.113 kr.

D. Stofngjöld

            Íbúðarhús allt að 300m3 og gróðurhús allt að 200m3 kr. 655.777 og fyrir hvern rúmmeter/fermetra þar yfir skal greiða 250 kr/m3.

Vélageymslur og gripahús allt að 300m3 kr. 381.202 og fyrir hvern rúmmeter/fermetra þar yfir skal greiða 250 kr/m3.

Fyrir sumarhús er stofngjaldið kr. 655.777.

Gjald fyrir auka mælagrind er kr. 97.864.

Auk stofngjaldsins sem að framan greinir skal greiða 4.909 kr. fyrir hvern lengdarmetra heimæðar frá stofnæð.

E. Önnur gjöld

Lokunargjald verður kr. 18.387 og auka álestur kr. 8.653.

 
Gjald fyrir útkall vegna tilkynningar notanda um bilun sem reynist vera í búnaði húseiganda verði kr. 15.000 án vsk á dagvinnutíma en sé leitað eftir þjónustu utan dagvinnutíma reiknast 55% álag.

 
7.    Lóðaleiga, verði 1% af lóðamati.

 
8.    Gatnagerðargjöld, verði óbreytt.

 
9.    Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvarinnar Borg, verði eftirfarandi:

   börn 10-16 ára,

Sund:                fullorðnir, 17-67 ára                                     elli- og örorkulífeyrisþegar

Stakt skipti                            1.250 kr.                                      500 kr. 

            10 miða kort                        5.000 kr.                                     2.500 kr. 

30 miða kort                      13.000 kr.                                     6.500 kr. 

Árskort                                          35.000 kr.                                   17.500 kr. 

 

Börn 0-9 ára fá frítt í sund.

 
Þreksalur:

Stakt skipti                           1.800 kr.

10 miða kort                      11.000 kr.

30 miða kort                      21.000 kr.

Árskort                                           35.000 kr.

 
Íþróttasalur:

Fullorðinn – 60 mín.              1.500 kr.  

Barn – 60 mín.                           750 kr. 

Hálfur dagur                        12.000 kr. 

Heill dagur                          21.000 kr. 

 
Sturta                                          700 kr. 

Leiga á sundfatnaði                   700 kr. 

Leiga á handklæði                     700 kr. 

Handklæði og sundföt            1.000 kr.

 
Íbúum með lögheimili í sveitarfélaginu er boðið upp á að kaupa árskort í sund, þreksal og íþróttasal.

Fullorðnir, 17-67 ára                8.000 kr. 

Börn, 10-16 ára                         3.500 kr. 

Elli- og örorkulífeyrisþegar       3.500 kr. 

Frítt er fyrir börn 9 ára og yngri með lögheimili í sveitarfélaginu.

 
10.  Gjaldskrá dagvistargjalda í leikskóladeild Kerhólsskóla, verði óbreytt:

4 klst. vistun                12.965 kr.

4,5 klst. vistun             14.587 kr.

5 klst. vistun                16.206 kr.

5,5 klst. vistun             17.828 kr.

6 klst. vistun                19.456 kr.

6,5 klst. vistun             21.069 kr.

7 klst. vistun                22.691 kr.

7,5 klst. vistun             24.311 kr.

8 klst. vistun                25.933 kr.

8,5 klst. vistun             27.554 kr.

9 klst. vistun                29.174 kr.

 
Systkinaafsláttur reiknast eingöngu af grunngjaldi og verður 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja og fjórða barn. Önnur afsláttakjör verða óbreytt.

 
11.  Gjaldskrá mötuneytis, verði óbreytt:

Stakur hádegisverður í leikskóladeild                        177 kr.

Hádegisverður pr. mánuð í leikskóladeild              3.382 kr.

Stök hressing í leikskóladeild                                       92 kr.

Hressing pr. mánuð í leikskóladeild                                    2.011 kr.

Hádegisverður fyrir grunnskóladeild                         317 kr.

Mjólk pr. mánuð í grunnskóladeild                            470 kr.

Ávextir og brauð pr. mánuð í grunnskóladeild       1.176 kr.

Hádegisverður, eldri borgara                                    410 kr.

Hádegisverður, kostgangara                                   1.080 kr.

 
12.     Gjaldskrá fyrir Félagsheimilið Borg, verði eftirfarandi:

 
Veislur:

Fermingar – afmæli, dagveislur               70.000 kr.         

Brúðkaup – afmæli, kvöldveislur              90.000 kr. 

Ættarmót, öll helgin                                145.000 kr.

Ættarmót, sólarhringur                            70.000 kr.

 
Fundir:

Kaffistofa                                          25.000 kr.

Stóri salur                                         40.000 kr.

Allt húsið                                          55.000 kr.

Ráðstefnur, námskeið o.þ.h.             55.000 kr.

 
Annað:

Leiga fyrir innansveitarfólk            23.000 kr.

        

Leiga á húsi pr.klst                          5.000 kr.  lágmarkstímar eru 5 klst.

Dansleikir                                         samningsatriði

Dúkaleiga, pr. dúk                           1.000 kr.

 
Staðfestingargjald, óafturkræft er 30% af gjaldskrá.

 
Breytingar þessar taka gildi frá og með 1. janúar 2018.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögur um álagningu gjalda og gjaldskrárbreytingar.

 
12.    Fjárhagsáætlun 2018-2021, fyrri umræða.
Fyrir liggja drög að fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir fjár­hags­árið 2018 og fyrir árin 2019, 2020 og 2021 sbr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018 var farið yfir hverja deild fyrir sig og hún skoðuð ýtarlega með tilliti til þess hver áætlun var vegna 2017 og staða deildarinnar eftir 10 mánuði. Þessar forsendur voru svo aðlagaðar aðstæðum.

Við mat á útsvarstekjum var stuðst við upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, upplýsingum úr bókhaldi sveitarfélagsins og íbúaþróun en vísbendingar eru um að íbúasamsetning í sveitarfélaginu leiði ekki til mikilla breytinga á útsvarstekjum. Útsvarsprósenta er sú sama og árið 2017 eða 12,44%. Fasteignaskattur er byggður á upplýsingum um álagningastofn frá Þjóðskrá Íslands og prufukeyrslu úr Fasteignaskrá. Álagningarprósenta fasteignaskatts er sú sama og árið 2017. Tekjur vegna fasteignaskatts hækka um 18,63% á milli ára.  Ekki eru áætlaðar tekjur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Í áætluninni er gert ráð fyrir að gjaldskrá hitaveitu hækki um 4%, gjaldskrá vegna seyrulosunar hækkar um 10%. Einstaka liðir í gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingu hækka verulega í samræmi við raunkostnað ársins 2017. Gjaldskrá Félagsheimilisins Borgar hækkar um 4-5% og stakt skipti í gjaldskrá Íþróttamiðstöðvarinnar hækkar um 25%. Aðrar gjaldskrár eins og vatnsveitu, mötuneytis og dagvistunargjöld verða óbreytt milli ára.

Gerð er tillaga um heildarfjárfestingar að fjárhæð 94,1 millj. kr.

Ekki er gert er ráð fyrir lántökum vegna fjárfestinga á árinu né sölu eigna.

 
Sveitarstjórn vísar áætluninni til annarrar umræðu.

 
Til kynningar
Sorpstöð Suðurlands.  Fundargerð  261. stjórnarfundar 10.11 2017.
Sorpstöð Suðurlands.  Fundargerð  aðalfundar 20.10 2017.
SASS.  Fundargerð  aðalfundar 19. – 20.10 2017.

Getum við bætt efni síðunnar?