Fara í efni

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða kennara í leikskóladeild

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða kennara í leikskóladeild

Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með u.þ.b. 70 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk þar af eru 18 börn í leikskóladeild. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt, útikennslu og heilbrigði.
Í leikskóladeild er unnið út frá hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði og um „Flæði“.

Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu.

Kennari í 80 - 100% starf

Kennarar í leikskóladeild starfa eftir starfslýsingu leikskólakennara.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Faglegur metnaður og ábyrgð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vilji til að gera góðan skóla betri

Fáist ekki kennari er möguleiki að ráða leiðbeinanda tímabundið.

Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur 22. desember 2021

________________________________________________________________
Nánari upplýsingar gefur Jóna Björg Jónsdóttir skólastjóri í síma 480-5520, 863-0463.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila
berist til skólastjóra, jonabjorg@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 30. nóvember 2021
Getum við bætt efni síðunnar?