Fara í efni

Lýðheilsu- og tómstundastyrkur

Grímsnes- og Grafningshreppur veitir foreldri / forráðamanni barna á aldrinum 5 - 18 ára og eldri borgurum 67 ára og eldri styrk til að stunda íþrótta-, æskulýðs- og menningarstarf. Meginreglan skal vera sú að skipulagt tómstundastarf nái yfir 6 vikur samfellt.

Hægt er að ráðstafa styrk til greiðslu styttri námskeiða, enda uppfylli námskeiðið önnur skilyrði um styrkhæfi. Að auki geta ungmenni í framhaldsskóla nýtt sér styrkinn til kaupa á árskortum í líkamsræktarstöðvar.
Tónlistarnám á vegum Tónlistarskóla Árnesinga og Tónsmiðju Suðurlands fellur ekki undir styrkveitingu.

Skilyrði fyrir veitingu lýðheilsu- og tómstundastyrkja:

• Að styrkþegi hafi lögheimili í Grímsnes- og Grafningshreppi.

• Að styrkþegi sé á aldrinum 5 - 18 ára eða 67 ára og eldri.

• Að um skipulagt starf/kennslu/þjálfun sé að ræða.

• Staðfesting á greiðslu/kvittun fylgi umsókn vegna lýðheilsu- og tómstundastyrkja. Á greiðslukvittun komi eftirfarandi fram: Nafn og kennitala félags, dags. greiðslu, fyrir hvað er verið að greiða, æfingatímabil, nafn og kennitala iðkenda.

• Styrkur getur aldrei orðið hærri en sem nemur æfingagjaldi/þátttökugjaldi viðkomandi íþrótta- eða tómstundagreinar.

• Lýðheilsu- og tómstundastyrki er ekki heimilt að færa milli ára. Styrkur fellur niður sé ekki um hann sótt á því ári sem styrkþegi stundar íþrótt/tómstundir.

Styrkur getur orðið að hámarki 50.000 kr. á ári.

Styrkumsækjandi skal skila inn þar til gerðu umsóknareyðublaði ásamt greiðslukvittun til skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps eða skila henni inn rafrænt hér á heimasíðunni.

Þær upplýsingar sem fylgja umsókninni til Grímsnes- og Grafningshrepps eru aðeins notaðar til að greiða út styrkinn og ákvarða hvort að viðkomandi eigi rétt á styrknum. Upplýsingarnar eru ekki notaðar í öðrum tilgangi og þeim ekki deilt til þriðja aðila.

Síðast uppfært 1. mars 2023
Getum við bætt efni síðunnar?