Fara í efni

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða Stuðningsfulltrúa / leiðbeinanda í frístund.

Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með um 80 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk.
Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt og útikennslu, list- og verkgreinar.
Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu.
Allir starfsmenn skólans sem eru í 100% vinnu fá tvær hreyfistundir á viku í vinnutíma.

Um er að ræða 100% stöðu sem skiptist í að vera stuðningsfulltrúi
ca. 75% og leiðbeinandi í frístund ca. 25%.
 Stuðningsfulltrúi starfar í nánu samstarfi við umsjónarkennara og sérkennara.
 Leiðbeinandi í frístund vinnur eftir leiðsögn yfirmanns frístundar.

Vænst er af umsækjendum:
 Góðrar færni í samskiptum
 Frumkvæði í starfi, faglegs metnaðar og ábyrgðar
 Sjálfstæði og skipulagðra vinnubragða
 Sveigjanleika og góðrar færni í samskiptum.
 Góðrar íslenskukunnáttu
 Framtakssemi og jákvæðni.
 Vilja til að gera góðan skóla betri.

Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til 10. september 2020

Nánari upplýsingar gefur Jóna Björg Jónsdóttir skólastjóri í síma 480-5520, 863-0463 eða
Íris Anna Steinarrsdóttir í síma 695-7110. Umsóknir með upplýsingum um menntun,
starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til skólastjóra jonabjorg@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 27. ágúst 2020
Getum við bætt efni síðunnar?