Fara í efni

Malbikun á Biskupstungnabraut

Tilkynning til íbúa og fasteignaeigenda í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:
Frá kl 04:00 aðfaranótt miðvikudags 26. ágúst til kl. 01:00 aðfaranótt fimmtudags 27. ágúst er stefnt á að malbika Biskupstungnabraut(35) á milli gatnamóta við Hringveg(1) og Þingvallavegar(36). Biskupstungnabraut verður lokuð og verður hjáleið um Skálholtsveg(31) og Skeiða- og Hrunamannaveg(30). Vegfarendur frá Höfuðborgarsvæðinu sem eiga leið í Grímsnes og Grafning er bent á hjáleið um Þingvelli(36). Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. Viðhengdu lokunarplani 8.0.93.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 04:00 aðfaranótt miðvikudags 26. ágúst til kl. 01:00 aðfaranótt fimmtudags 27. ágúst.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Síðast uppfært 26. ágúst 2020
Getum við bætt efni síðunnar?