Aðalfundur Ungmennafélagsins Hvatar
Aðalfundur Ungmennafélagsins Hvatar verður haldinn í félagsheimilinu á Borg þriðjudaginn 16. apríl kl. 20:00.
Dagskrá fundarins:
- Síðasta fundargerð lesin
- Ársreikningur
- Almenn umræða um starfið, upplýsingar og hugmyndir
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Við hvetjum alla sem eru áhugasamir um starf félagsins til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á starfið.
Við óskum einnig eftir framboðum í stjórnarseti í félaginu og geta áhugasamir sent póst á formann á netfangið umfhvot@gmail.com eða mætt á fundinn og boðið sig fram. Sérstaklega er óskað eftir því ef einhver hefur áhuga að taka við formennsku í félaginu. Núverandi formaður mun ekki sitja meira en ár til viðbótar en er einnig tilbúin að stíga til hliðar á þessu ári og hleypa öðrum að, sérstaklega fólki sem hefur skoðanir á starfinu og langar að bæta starfið enn meira.
Vonumst til að sjá sem flesta á fundinum til að eiga gott samtal með kaffibolla og veitingum.
Kveðja
Stjórnin