Fara í efni

TOHOKU með augum japanskra ljósmyndara

TOHOKU með augum japanskra ljósmyndara
01.02. – 22. 03. 2020
Á sýningunni eru verk eftir níu japanska ljósmyndara og ljósmyndahóp sem allir eru virtir og vel kynntir í sínu heimalandi sem utanlands. Sýningin er unnin að frumkvæði Japan Foundation sem fól einum fremsta ljósmyndagagnrýnanda landsins, Kotaro Iizawa, sýningarstjórnina. Viðfangsefnið endurspeglar lífið og menninguna í TOHOKU í fortíð, nútíð og jafnvel framtíð, með augum ljósmyndunar, sem mótvægi við þær ljósmyndir sem fóru um heim allan í kjölfar hörmunganna vegna stóra jarðskjálftans 2011. Tohoku er jaðarsvæði á norðaustur hluta eyjarinnar Honsu sem er stærsta eyja Japans. Svæðið er búið einstökum og ríkulegum náttúruauðlindum þannig að landbúnaður, fiskveiðar og skógarhögg  blómstrar þar, en þrátt fyrir náttúrugæði sín markast saga Tohoku einnig af erfiðri lífsbaráttu.
 
Sýningin er sett upp í Listasafni Árnesinga í samvinnu við Sendiráð Japans á Íslandi og Japan Foundation.
 
Opnunartími: fimmtudaga-sunnudaga 12 - 18
Aðgangur að safninu er ókeypis.
Getum við bætt efni síðunnar?