Fara í efni

Vetrarfrí fjölskyldunnar - Hornafjörður

HORNAFJÖRÐUR

visitvatnajokull.is

hornafjordur.is 

Vatnajökulsþjóðgarður er innan marka sveitarfélagsins Hornafjarðar. Vegna nálægðar við stærsta jökul Evrópu, Vatnajökul, er þar að finna falleg lón með stórkostlegum ísjökum, jökulbreiður, svartar sandstrendur, mikið fuglalíf, hreindýr á vappi og seli. Á svæðinu má finna hæsta tind landsins, Hvannadalshnjúk, í Öræfajökli. Þannig má með sanni segja að sveitarfélagið sem kallast Ríki Vatnajökuls búi yfir sannkölluðu ævintýralandi fyrir alla fjölskylduna.

Sveitarfélagið er ríkt af fjölbreyttri afþreyingu, gistingu og veitingum. Höfn er eini þéttbýliskjarninn í Ríki Vatnajökuls og þar er mikil og góð þjónusta. Þar er að finna hótel, veitingastaði, söfn, tjaldsvæði, verslanir, bensínsstöðvar, pósthús, apótek o.fl. Höfn er stundum nefndur humarbærinn og árlega er haldin þar vegleg Humarhátíð sem er ein af elstu bæjarhátíðum á Íslandi. Það er skylda að bragða á humri þegar komið er á Höfn og af nógu að taka þar sem hver einasti veitingastaður í bænum býður upp á gómsæta humarrétti.

Gestastofa og Upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn er í Gömlubúð, vetraropnunartími er alla daga frá kl. 9-17.

Skaftafellsstofa er upplýsinga- og fræðslumiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli, opnunartími í febrúar er 10-18 alla daga, í mars kl. 9-18 alla daga.

Söfn/sögustaðir/sýningar fyrir fjölskylduna

  • Á Höfn er náttúrustígur með fallegu útsýni til jökla. Stígurinn liggur meðfram sjónum og þar er hægt er að fræðast um sólkerfið á 2,8 km. löngum malbikuðum göngustíg. Þar má einnig finna steinagarð sem geymir hnullunga sem eru einkennandi fyrir bergtegundir á Suðausturlandi.
  • Í Gömlubúð á Höfn er hægt að fræðast um fuglalíf enda er Hornafjörður einn helsti viðkomustaður farfugla á Íslandi. Einnig er ítarlega fjallað um loftslagsbreytingar og hvaða áhrif þær muni hafa á líf okkar í framtíðinni.
  • Tvær myndlistarsýningningar eru í Svavarssafni á Höfn.
  • Á Hala í Suðursveit má fræðast um rithöfundinn Þórberg Þórðarson, ævi hans og ritverk.

Útivist / Gönguferðir/stígar

  • Margar gönguleiðir er að finna í nágrenni Hafnar. Hægt er að nálgast gönguleiðakort á upplýsingamiðstöðinni í Gömlubúð auk korts fyrir áðurnefndan náttúrustíg.

Veitingahús

Í humarbænum Höfn má finna marga góða veitingastaði og allir bjóða þeir m.a. upp á humarrétti. Veitingastaðirnir leggja flestir mikla áherslu á að bjóða upp á mat úr héraði.

  • Humarhöfnin – sérhæfir sig í humarréttum, auk annarra rétta
  • Pakkhúsið – humarréttir, sjávarréttir og margt fleira
  • Ósinn – hornfirskur humar auk kjöt-, fisk-, og grænmetisrétta.
  • KaffiHornið – barnamatseðill, humarsamloka, steikarloka, steikur o.fl.
  • Íshúsið pizzeria – bjóða upp á pizzur af öllum gerðum
  • Z-Bistro – morgunverður, humarsalat og ýmsir réttir
  • Hafnarbúðin diner – skyndibiti, morgunverður, humarlokur o.fl.
  • Otto – þar eru t.d. bakaðir himneskir snúðar sem allir verða að prufa

Sund

  • Sundlaugin  á Höfn er 25x8,5 metra sundlaug, vaðlaug fyrir börnin, tveir heitir pottar, gufubað, ískar og þrjár mismunandi rennibrautir. 
  • Í Hoffelli eru heitar náttúrulaugar og einstakt útivistar- og göngusvæði í grennd.

Golf

Silfurnesvöllur á Höfn er 9 holu golfvöllur. Einstök jöklasýn er frá vellinum.

Önnur afþreying

Mörg afþreyingarfyrirtæki bjóða upp á ferðir í nágrenni Hafnar t.d. jöklagöngur, jeppaferðir á jökul og Lónsöræfi, snjósleðaferðir, íshellaferðir, ísklifur, svifnökkvaferðir, kayaksiglingar á jökullónum auk bátsferða á Fjallsárlón og Jökulsárlón.

Framboð ferða fer eftir árstíð.

Gisting

Gistimöguleikar eru fjölbreyttir: hótel, gistiheimili, farfuglaheimili og tjaldsvæði.  

TILBOÐ HJÁ FERÐAÞJÓNUSTUAÐILUM FYRIR FJÖLSKYLDUNA Í VETRARFRÍINU

Glacier Adventure - glacieradventure.is

  • Við bjóðum Crystal Ice Cave Adventure ferðina okkar á 50% afslætti fyrir þá sem vilja koma :) Einfaldlega hafa samband við okkur og við mundum bóka fjölskylduna.

Glacier Journey - glacierjourney.is

  • Býður 35% afslátt af öllum íshellaferðum sínum meðan á vetrarfríum stendur ef bókað er með kóðanum VETRARFRI2020 á glacierjourney.is

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?