Fara í efni

Úlli Ljóti - frisbígolfmót

Úlli ljóti er landsfrægt frisbígolfmót sem haldið verður á Úlfljótsvatnsvelli laugardaginn 23. september 2023 en þetta er eitt elsta folfmót landsins enda fyrsta mótið haldið árið 2002 þegar völlurinn var opnaður.

Spilaðar er samtals 36 brautir og verður spilaður heill hringur (18 brautir) fyrir hádegið og annar (18 brautir) eftir hádegið sem þó gæti breyst ef veður er óhagstætt. Sem áður verður Úlli ljóti styrktarmót þar sem allur ágóði fer í að byggja áfram upp völlinn m.a. að útbúa góða heilsársteiga.

Keppt verður í tíu flokkum og eru veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Mótið er ekki PDGA reitað.

Flokkar í boði:
Opinn flokkur – Bláir teigar
Meistaraflokkur kvenna – Bláir teigar
Almennur kvennaflokkur – Hvítir teigar
Almennur flokkur 1 – Bláir teigar
Stórmeistaraflokkur 40 og eldri – Bláir teigar
Stórmeistaraflokkur kvenna 40 og eldri – Hvítir teigar
Stórmeistaraflokkur 50 og eldri – Bláir teigar
Ungmennaflokkur (15 ára og yngri) – Bláir teigar
Barnaflokkur (12 ára og yngri) – Rauðir teigar
Skátaflokkur (fyrir skáta) - Rauðir teigarMótsstjóri er Runólfur Helgi Jónasson.

Þátttökugjald er 5.000 kr. og rennur allur hagnaður í endurbætur á vellinum. Innifalið er grillaður hamborgari á milli umferða og drykkur.

Skráningarsíða

Getum við bætt efni síðunnar?