Fara í efni

Landsátak í sundi 1.- 28. nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 28. nóvember 2021. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja. Þetta átak er framhald af Íþróttaviku Evrópu sem tókst einkar vel í ár.

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Munum eftir því hvað sund er frábært!

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig þarf að fara inn á syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og byrja svo að skrá sínar sundvegalengdir. Þeir sem eiga notendanafn í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Einnig er hægt að skrá vegalengdir í afgreiðslu sundlaugarinnar á Borg.

Syndum saman hringinn í kringum Ísland. Þeir metrar sem þú syndir safnast saman, hér verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt saman.

Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt von á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.

Síðast uppfært 29. október 2021
Getum við bætt efni síðunnar?