Gusa með Gusan okkar í sundlauginni (opin tími - skráning í gegnum abler)
mið 18. mar
kl. 18:00
Í tengslum við Heilsuvikuna verður boðið upp á gusu í sundlauginni á Borg á vegum Gusan okkar.
Gusumeistari leiðir upplifunina í gufunni þar sem áhersla er lögð á slökun, vellíðan og góða stemningu.
Tíminn er opinn öllum, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram í gegnum Abler þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Við hvetjum alla til að koma og prófa þessa einstöku og endurnærandi upplifun.