Heilsuvika - Barre Fit - opin tími kl 19:40 (ATH takmarkað pláss)
Í tengslum við Heilsuviku í Grímsnes- og Grafningshreppi 16.–22. mars verður opinn Barre Fit tími með Andreu miðvikudaginn 18. mars kl. 19:40.
Um er að ræða fjölbreyttan styrktartíma sem hentar öllum – hver og einn vinnur með sínar þyngdir og á sínum hraða. Engin hopp eru í tímanum og í lok hans eru djúpar og góðar teygjur.
Barre byggist á litlum, markvissum hreyfingum, léttum lóðum og mörgum endurtekningum. Æfingarnar fara fram í takt við háa og peppandi tónlist og eru frábær leið til að:
-
Styrkja líkamann
-
Bæta líkamsbeitingu
-
Tóna vöðva
Andrea er einka- og barreþjálfari og leggur mikla áherslu á rétta líkamsbeitingu, skilning á því hvaða vöðvahópar eru að vinna og að skapa jákvæða og hvetjandi stemningu. Markmiðið er að allir finni sig örugga og styrkist bæði líkamlega og andlega.
Mikilvægt er að skrá sig fyrirfram í tímann.
Skráning fer fram í gegnum Abler ( https://www.abler.io/shop/gogg/namskeid/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTQyNzk= )
Athugið: Þátttakendur eru beðnir um að taka með sér handklæði til að leggja yfir dýnurnar.
Allir velkomnir að taka þátt í Heilsuvikunni með hreyfingu og gleði!