Fara í efni

Heilsuvika - Fjölskyldutími Hvatar

Ungmennafélagið Ungmennafélagið Hvöt býður til fjölskyldutíma laugardaginn 21. mars kl. 10:00–12:00 í íþróttahúsinu.

Þá verður íþróttahúsið opið fyrir fjölskyldur þar sem öllum er frjálst að mæta og nýta aðstöðuna til leiks og skemmtunar. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir hreyfingu, samveru og jákvæða upplifun þar sem börn og fullorðnir geta leikið sér saman og notið þess að vera virk.

Fjölskyldutíminn er hluti af Heilsuvikunni og er frábært tækifæri til að:

  • Hreyfa sig saman

  • Prófa fjölbreytta afþreyingu

  • Efla tengsl og samveru

Engin skráning er nauðsynleg – mætið bara með góða skapið og íþróttaskó!

Allar fjölskyldur hjartanlega velkomnar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?