Fara í efni

Heilsuvika - Pílumót Hvatar opnun á nýrri aðstöðu

Ungmennafélagið Ungmennafélagið Hvöt býður til pílumóts föstudaginn 20. mars kl. 20:00 í Félagsheimilinu Borg, þar sem ný aðstaða til pílukasts verður formlega tekin í notkun. Viðburðurinn er í tengslum við Heilsuviku Grímsnes- og Grafningshrepps.

Opnað verður fyrir nýju aðstöðuna, keppendum raðað niður á velli og spilað í góðri stemningu. Viðburðurinn er opinn öllum – bæði þeim sem hafa reynslu af pílukasti og þeim sem langar að prófa í fyrsta sinn.

Markmiðið er að kynna nýju aðstöðuna, efla félagslíf og skapa skemmtilega samveru fyrir íbúa á öllum aldri.
Ungmennafélagið hvetur alla til að mæta, taka þátt eða kíkja við og upplifa stemninguna.

Allir velkomnir að taka þátt í að byggja upp nýja og skemmtilega aðstöðu í samfélaginu!

Getum við bætt efni þessarar síðu?