Fara í efni

Heilsuvika - Svefn og Heilsa, fyrirlestur frá dr. Katrín Ýr Friðgeirsdóttur í Félagsheimilinu Borg

Í tengslum við Heilsuviku í Grímsnes- og Grafningshreppi 16.–22. mars verður haldinn fræðandi fyrirlestur um svefn og áhrif hans á heilsu okkar þriðjudaginn 17. mars kl. 19:30.

Fyrirlesari er Katrín Ýr Friðgeirsdóttir, doktor í íþróttafræði frá Háskólinn í Reykjavík. Katrín Ýr hefur sérhæft sig í rannsóknum á svefni og heilsu og hefur rannsakað hvernig svefn hefur áhrif á líkamlega og andlega vellíðan.

Í fyrirlestrinum verður farið yfir:
Almennar ráðleggingar varðandi svefn
Hvernig svefn hefur áhrif á heilsu, endurheimt og daglega líðan
Hvað við getum gert til að bæta svefnvenjur okkar

Svefn er ein af grunnstoðum heilsu, rétt eins og hreyfing og næring. Fyrirlesturinn hentar öllum sem vilja bæta líðan sína og öðlast betri skilning á mikilvægi svefns í daglegu lífi.

Allir hjartanlega velkomnir!

Getum við bætt efni þessarar síðu?