Fara í efni

Heilsuvika - Slitgigtarskóli Þórfríðar (opnir tímar)

Í tengslum við Heilsuviku í Grímsnes- og Grafningshreppi 16.–22. mars býður Slitgigtarskóli Þórfríðar í opna kynningartíma mánudaginn 16. mars kl. 9:30 og 10:30.

Slitgigtarskólinn er sérhæft úrræði fyrir einstaklinga með slitgigt og byggir á fræðslu og markvissri þjálfun sem miðar að því að draga úr verkjum, bæta hreyfigetu og auka lífsgæði. Áhersla er lögð á öruggar æfingar, einstaklingsmiðaða nálgun og fræðslu um hvernig hægt er að lifa virku og heilbrigðu lífi þrátt fyrir slitgigt.

Opnu tímarnir eru kjörið tækifæri fyrir áhugasama að kynna sér starfsemi skólans, fá innsýn í æfingarnar og fræðsluna og spyrja spurninga.

Við hvetjum öll sem hafa áhuga – hvort sem um er að ræða einstaklinga með slitgigt, aðstandendur eða aðra forvitna – til að mæta og taka þátt í Heilsuvikunni með okkur.

Nánari upplýsingar um slitgigtarskólann má finna á heimasíðu Þórfríðar.

https://thorfridur.is/is/pages/um-slitgigtarskolann

Getum við bætt efni þessarar síðu?