Heilsuvika - Fyrirlestur um næringu og heilsu – P.S. Árangur
fim 19. mar
kl. 19:30
Í tengslum við Heilsuviku í Grímsnes- og Grafningshreppi 16.–22. mars verður haldinn fræðandi fyrirlestur um næringu og heilsu í Félagsheimilinu á Borg fimmtudaginn 19. mars kl. 19:30.
Fyrirlesturinn er í umsjón P.S. Árangur, sem sérhæfir sig í ráðgjöf og fræðslu um heilsusamlegar lífsvenjur.
Farið verður yfir:
-
Almennar ráðleggingar varðandi næringu
-
Hvernig mataræði hefur áhrif á orku, heilsu og vellíðan
-
Hvernig við getum stutt við heilsuna með einföldum og raunhæfum venjum í daglegu lífi
Markmiðið er að veita hagnýta og aðgengilega fræðslu sem nýtist bæði einstaklingum og fjölskyldum sem vilja efla heilsu sína til lengri tíma.
Allir hjartanlega velkomnir á fræðandi kvöld í Heilsuvikunni!