Maggi og Stjórnin - Tónleikar í tengslum við Grímsævintýri
lau 22. ágú
kl. 20:00
Grímsnes- og Grafningshreppur stendur fyrir tónleikum í Félagsheimilinu Borg í tengslum við 100 ára afmæli tombólunnar á Grímsævintýrum.
Á svið stíga Magnús Jón Kjartansson, Sigga Beinteins og Grétar Örvars, ásamt frábærri hljómsveit:
Friðrik Karlsson – gítar
Jóhann Ásmundsson – bassi
Ásmundur Jóhannsson – trommur
Frítt er inn á tónleikana.
Hjálparsveitin sér um barinn á tónleikunum og rennur ágóðinn til styrktar starfsemi hennar.
Við hvetjum íbúa og gesti til að mæta og njóta góðrar tónlistar og skemmtilegrar kvöldstundar á Borg