Snittur tónleikar
fös 14. ágú
Í tilefni af Blómstrandi dögum bjóðum við upp á skemmtilega tónleika með hljómsveitinni Snittur í boði Hveragerðisbæjar.
Snittur er samstarfsverkefni Hreiðars Más Árnasonar trommara, Ingimundar Guðmundssonar hljómborðsleikara og Gunnars Jónssonar gítarleikara. Sveitin sérhæfir sig í ósunginni stemningsmúsík úr ýmsum afkimum poppkúltúrsins og er kjörin í snittuboðið, fordrykkina eða hvar sem nautnir og notalegheit eru við lýði.