Framkvæmda- og veitunefnd
Fundargerð.
13. fundur samgöngunefndar Grímsnes- og Grafningshrepps var haldinn í stjórnsýsluhúsinu Borg, miðvikudaginn 29. mars 2017 kl. 20.00.
Fundinn sátu:
Steinar Sigurjónsson, formaður
Björn Kristinn Pálmarsson
Jón Örn Ingileifsson
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Steinar Sigurjónsson
1. Úthlutun vegstyrkja til frístundabyggða.
Farið var yfir umsóknir sem bárust um styrki til viðhalds á vegum í frístundabyggðum sveitarfélagsins. Heildarfjármagn til úthlutunar er 1.800.000 kr. fyrir árið 2017. Við mat á umsóknum félaganna var horft til heildarfjölda húsa á viðkomandi svæði, heildarvegalengdar svæðisins, umfangs verksins og styrkja sem félögin hafa fengið síðustu ár. Verkefnin snúast flest um að bera í vegi og lagfæra þá.
Samgöngunefnd leggur til að eftirtalin félög hljóti styrk skv. neðangreindu:
Félag frístundahúsalóðaeigenda Hæðarbrúna í Grímsnesi 25.000 kr.
Kerhraun svæði E 25.000 kr.
Þrastaungarnir 50.000 kr.
Félag Lóðareigenda í landi Minna Mosfells(FLUMM) 50.000 kr.
Félag landeiganda við Kjarrmóa 50.000 kr.
Vaðlækur – félag sumarhúsaeigenda við Vaðlækjaveg 50.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda í Kerengi 100.000 kr.
Félag sumarbústaðaeigenda við 5. braut við Álftavatn 100.000 kr.
Félag landeigenda við Mosabraut og Hrauntröð 100.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda við Rimamóa 100.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda Þóroddsstöðum við Stangarlæk 100.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda í Öldubyggð 100.000 kr.
Bakkabyggð 150.000 kr.
Klausturhóll sumarhúsafélag 150.000 kr.
Kerhraun, félag sumarhúsaeigenda 150.000 kr.
Hólaborgir sumarhúsafélag Hallkelshólum 150.000 kr.
Öndverðanes ehf. 150.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda v/ Ásskóga 200.000 kr.
Alls bárust 18 umsóknir, og leggur samgöngunefnd því til að öll þau félög er sóttu um hljóti styrk.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 22:04.