Fara í efni

Samráðshópur um málefni aldraðra

8. fundur 26. janúar 2025 kl. 12:30 - 14:00 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Nefndarmenn
  • Sigríður Kolbrún Oddsdóttir
  • Þorkell Gunnarsson
  • Kristín Karólína Karlsdóttir
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Óttar Guðlaugsson.

 1. Mál. – 7. Fundargerð yfirfarin
Fundagerð seinasta fundar yfirfarin og samþykkt án athugasemda

2. Mál. - Sæluferð 2025
Heilsu- og Tómstundar fulltrúi lagði fram kostnaðar tillögur við sæluferðina, þar sem tekið var
mið af gistingu, mat og afþreyingu. Bent var á að styrkur sveitarfélagsins nær ekki að standa undir
heildarkostnaði ferðarinnar. Umræður fóru fram um möguleika á birtingu skráningar í ferðina.
Samráðshópurinn samþykkir að leggja til flatan styrk frá sveitarfélaginu sem niðurgreiðir hluta
ferðarinnar og samþykkir að leggja fram drög að ferðaráætlun til 67 ára eldri að greiðsla megi
ekki fara yfir þrjátíu þúsund krónur úr eigin vasa. Kynnt verður sæluferðina eftir nokkra daga eftir
stofnfund 60+

3. Mál – Stofnfundur 60+
Umræða tekin um mætingu og mögulega einstaklinga sem gæti setið í stjórn.
Ákveðið var að henda áminningu til að hvetja til mætingar.

Ekki fleira var rætt á fundi og honum slitið kl 14:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?