Fara í efni

Samráðshópur um málefni aldraðra

9. fundur 17. febrúar 2025 kl. 12:15 - 14:05 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Nefndarmenn
  • Sigríður Kolbrún Oddsdóttir
  • Þorkell Gunnarsson
  • Kristín Karólína Karlsdóttir
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Óttar Guðlaugsson.

 1. Mál. – Sæluferð á vegum sveitarfélagsins
Ræddir voru möguleikar varðandi skipulag sæluferða ársins og framtíðaráform í ljósi stofnunar
Félags eldri borgara í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Samráðshópur samþykkir að bóka ferð á Geysi fyrir einstaklinga 67 ára og eldri, með vísan til þess
að fyrirhugað var að halda ferðina áður en hugmyndir um stofnun Félags eldri borgara komu til
umræðu.
Hópurinn samþykkir einróma að þetta verði síðasta sæluferð á vegum sveitarfélagsins í núverandi
mynd. Jafnframt leggur hópurinn til að styrkur sveitarfélagsins til Félags eldri borgara verði að
fjárhæð sem samsvarar kostnaði sæluferðar þessa árs, þannig að félagið geti áfram skipulagt
starfsemi sína á sömu forsendum í framtíðinni.

2. Mál. Félag eldri borgara( 60+)
Tekin var umræða um mikilvægi þess að tryggja góða mætingu á stofnfund félagsins og að kynna
fundinn vel.
Lagt er áhersla á að félagið verði starfrækt undir formerkjum 60+ í stað þess að bera heitið Félag
eldri borgara. Markmiðið er að ná til breiðari aldurshóps og hvetja sem flesta til þátttöku.

3. Mál - tölvunámskeið
Samráðshópurinn áherslu að ná fram tölvunámskeiði á þessu ári til efla upplýsingatækni eldri
borgara. Tekið sérstaklega fram varðandi island.is, heilsuveru og netöryggi. Umræður teknar
varðandi uppsetningu á námskeiði.
Samráðshópur leggur til að starfsmaður sveitarfélagsins kanni möguleika á námskeiðshaldi
fyrir þennan aldurshóp og leggur áherslu á tvískiptu námskeiði fyrir bæði Apple tæki og
android/PC tæki.

4. Mál - Önnur mál.
• Gönguferðir sumarsins
Rætt var um skipulag gönguferða sumarsins, með áform um að hefja ferðir í maí með léttari
göngum. Tillaga liggur fyrir um að hefja göngurnar á Snæfoksstöðum, en Kaldárhöfði er á
dagskrá í júlí. Enn vantar tillögur fyrir júní, ágúst og september.
Mögulegar gönguleiðir sem ræddar voru:
• Mosfellið
• Kiðjaberg
• Hestfjall
• Hesteyru
• Gamli vegurinn við Kerhól (Hólaskarð)
Lagt er til að skipuleggja göngurnar nánar á næsta fundi.
• Heilsuganga í yndisskóginum
Lagt var til að halda vikulega heilsugöngu í yndisskóginum, undir leiðsögn heilsu- og
tómstundafulltrúa. Gangan yrði haldin einu sinni í viku, á miðvikudögum kl. 11:00, og stefnt er
að því að hefja hana fljótlega.

Óttar Guðlaugsson mun kynna þetta á stofnfundi 60+ og setja tilkynningu á samfélagsmiðla til að
auglýsa viðburðinn.

Ekki fleira var rætt á fundi og honum slitið kl 14:05.

Getum við bætt efni þessarar síðu?