Fara í efni

Sveitarstjórn

285. fundur 07. september 2011 kl. 09:00 - 11:30 Stjórnsýsluhúsið Borg
Sveitarstjórn
  • Hörður Óli Guðmundsson
  • Ingibjörg Harðardóttir
  • Sverrir Sigurjónsson í fjarveru Gunnars Þorgeirssonar
  • Ingvar G. Ingvarsson
  • Guðmundur Ármann Pétursson
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Ingibjörg Harðardóttir

 

1.   Fundargerð sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps.  

Fundargerð sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps frá 17. ágúst 2011 lá frammi á fundinum.

 
2.   Fundargerðir.

a)     38. fundur skipulags- og byggingafulltrúaembættis Uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps, 25.08 2011. Mál nr. 1, 3, 4, 7, 12 og 13 þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar.
            Fundargerðin lögð fram.  Varðandi mál nr. 4, ný byggingarreglugerð, þá tekur sveitarstjórn undir athugasemdir byggingarfulltrúa. Önnur mál rædd og þau staðfest af sveitarstjórn.

b)    Fundargerð fjallskilanefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 21. ágúst 2011.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

c)     Fundargerð 1. fundar Velferðarnefndar Árnesþings, 31. ágúst 2011.
Fundargerðin lögð fram og hún staðfest.

 
3.   Skipan fulltrúa í fræðslunefnd.
Á fundi sveitarstjórnar þann 17. ágúst s.l. var frestað að skipa nýjan fulltrúa K-lista í fræðslunefnd. Fulltrúar K-lista tilnefna Hugrúnu Sigurðardóttur sem aðalfullrúa sinn í fræðslunefnd út kjörtímabilið 2010-2014.

 
4.   Bréf frá Torfu ehf., eigenda Torfastaða 1.
Fyrir liggur bréf frá eigendum Torfastaða 1 um að sveitarfélagið afsali sér 2.500 m2  lóð sem stendur undir veiðihúsi eigenda Torfastaða 1 og Torfastaða 2 við Sogið. Vegna byggingar veiðihússins á sínum tíma var þessi lóð stofnuð en við sölu jarðarinnar til Steingríms Gíslasonar árið 2004 láðist að tilgreina þessa lóð sérstaklega og því er hún enn skráð á sveitarfélagið. Í samráði við lögmann sveitarfélagsins Óskar Sigurðsson hrl. þá samþykkir sveitarstjórn að afsala sér lóðinni með landnúmerið 170936 til eigenda Torfastaða 1 og felur sveitarstjóra að undirrita afsal vegna þessa. Torfa ehf. mun bera allan kostnað af afsalsgerð og þinglýsingu.

 
5.   Klæðning á heimreiðar.
Fyrir liggur samþykkt sveitarstjórnar að greiða 60% af klæðningu á heimreiðar í sveitarfélaginu á þeim forsendum að Vegagerðin byggði upp veginn og greiddi efra burðarlag undir klæðningu. Reglum Vegagerðarinnar hefur nú verið breytt þannig að Vegagerðin greiðir aðeins 50% af efra burðarlagi undir klæðningu.

Sveitarstjórn samþykkir að landeigendur þurfi ekki að bera þann viðbótarkostnað sem kann að hljótast af breyttum reglum Vegagerðarinnar á þeim verkum sem þegar eru hafin.

Sveitarstjórn krefst þess að Vegagerðin standi við fyrri ákvörðun sína um að greiða að fullu efra burðarlag undir klæðningu enda byggir samþykkt sveitarstjórnar á þeirri kostnaðar hlutdeild.

Sveitarstjórn mótmælir því verklagi Vegagerðarinnar að breyta reglum á miðju framkvæmdartímabili.

 
6.       Kostnaðaráætlun Eflu hf. í forhönnun og kostnaðaráætlun á ljósleiðarakerfi í Grímsnes- og Grafninghreppi.
Fyrir liggur kostnaðaráætlun Eflu hf. í forhönnun og kostnaðaráætlun á ljósleiðarakerfi um sveitarfélagið. Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og felur sveitarstjóra að afla upplýsinga hjá nágranna sveitarfélögum um fjarskipti.

 
7.   Gjaldskrá mötuneytis.
Sveitarstjóri leggur fram drög að hækkun gjaldskrár mötuneytis um 15%. Sveitarstjórn vísar drögunum til umsagnar fræðslunefndar.

 
8.   Gjaldskrá dagvistargjalda í leikskóladeild Kerhólsskóla.
Sveitarstjóri leggur fram drög að hækkun gjaldskrár dagvistargjalda í leikskóladeild Kerhólsskóla um 12%. Sveitarstjórn vísar drögunum til umsagnar fræðslunefndar. Sverrir Sigurjónsson óskar eftir að fræðslunefnd fjalli um hvort veita eigi foreldrum í námi afslátt af dagvistargjöldum.

 
9.   Samkomulag um landbótaáætlun fyrir Grímsnesafrétt 2011-2015.
Landbótaáætlun sauðfjárbænda og sveitarfélagsins rann út í árslok 2010. Gerð hefur verið ný landbótaáætlun fyrir Grímsnesafrétt 2011-2015 og staðfestir sveitarstjórn hana.

 
10.    Beiðni um styrk frá Birgi Leó Ólafssyni vegna rotþróar að Stangarlæk 1.
Fyrir liggur beiðni um styrk frá Birgi Leó Ólafssyni vegna rotþróar að nýbýlinu Stangarlæk 1. Sveitarstjórn frestar málinu til næsta fundar.

 
11.    Beiðni um styrk frá Íþróttasambandi lögreglumanna vegna verkefnisins „Í umferðinni“.
Fyrir liggur beiðni um styrk frá Íþróttasambandi lögreglumanna vegna verkefnisins „Í umferðinni“. Sveitarstjórn hafnar erindinu.

 
12.    Bréf frá Jafnréttisstofu um afhendingu jafnréttisáætlunar, ásamt framkvæmdaráætlun.
Fyrir liggur bréf frá Jafnréttisstofu um að sveitarfélagið afhendi jafnréttisáætlun ásamt framkvæmdaráætlun. Við stofnun Velferðarnefndar Árnesþings var nefndinni falið að sjá um jafnréttismál sveitarfélaganna og hefur bréfið verið sent til nefndarinnar til afgreiðslu.

 
13.    Landskiptagjörð fyrir Þórisstaði.
Óskað er umsagnar sveitarfélagsins á fyrirhugaðri landskiptagjörð jarðarinnar Þórisstaða, sbr. 13. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Lóðinni sem er skipt út úr jörðinni er 23 ha og nefnist Lækjarmýri. Ekki hafa komið fram mótmæli við landamerki umræddrar lóðar og liggur fyrir áritaður uppdráttur af landeiganda og eigendum aðliggjandi jarða. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við landskiptagjörðina.

 
14.    Bréf frá Iðnaðarráðuneyti vegna tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Þingsályktunartillagan lögð fram.

 
15.    Akstur vegna fullorðinsfræðslu fatlaðra.
Undanfarin ár hefur Grímsnes- og Grafningshreppur séð um akstur fatlaðra íbúa á Sólheimum í fullorðinsfræðslu á Selfoss og til læknis í Laugarás. Samþykkt er að halda þeim akstri áfram óbreyttum þar til samkomulag hefur náðst við Sólheima. Guðmundur Ármann Pétursson víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

 

Til kynningar
SASS.  Fundargerð  445. stjórnarfundar 12.08 2011.
Skólaskrifstofa Suðurlands. Fundargerð 131. stjórnarfundar 18.08 2011.
Skólaskrifstofa Suðurlands. Fundargerð 132. stjórnarfundar 01.09 2011.
Bréf frá Ungmennafélagi Íslands um forvarnir gegn munntóbaki.
Kynningarbréf á verkefninu Ísland – Allt árið 2011-2014.
Fyrirmyndarlandið Ísland, 10 atriði til að gera Ísland að enn meira velferðarþjóðfélagi.
Bréf frá Ungmennafélagi Íslands um ráðstefnu fyrir ungt fólk, „Ungt fólk og lýðræðið“.
Dagur íslenskrar náttúru þann16.september n.k.
Bréf frá Velferðarvaktinni um  hvatningu velferðarvaktarinnar í upphafi skólastarfs.
Vottunarstofan Tún ehf., ársreikningur 2010.
-liggur frammi á fundinum-.

 

Ekki fleira tekið fyrir og fundið slitið kl. 11:30

 

Getum við bætt efni síðunnar?